Stærsta sjóbleikja sumarsins?
Vigfús með tröllið.
Við höfum heyrt af all nokkrum verulega stórum sjóbleikjum í sumar, aðallega úr Hrútafjarðará, en hér er komin móðir allra boltableikja og er okkur til efs að stærri sjóbleikja hafi veiðst það sem af er vertíð. Hún er úr Hafralónsá þessi.
Hér er stórbleikjan á leið í frelsið aftur.
Það var Vigfús Orrason leiðsögumaður sem veiddi sjóbleikjuna í veiðistað númer 15 í Hafralónsá fyrir nokkrum dögum. Hann sleppti bleikjunni aftur þannig að hún var ekki vegin, en Vigfús mældi fiskinn þó í bak og fyrir. “Þær eru sumar stórar bleikjurnar í Hafralónsá en þetta er sú stærsta sem ég hef veitt. Hún var 70 cm löng og 33 cm að ummáli. Hvað er það þungt?“ sagði Vigfús í skeyti til okkar. Já, það má taka undir spurningu hans, en fæst orð bera minnsta ábyrgð í þeim efnum. Menn leyfa bara hugmyndarfluginu að ráða. Ef að lesendur lúra á fleiri fréttum af risableikjum í sumar, þá væri allt slíkt efni vel þegið. Netpósturinn okkar er ritstjorn@votnogveidi.is
