Hrikalegar tölur úr Aðaldalnum
Klassísk mynd Hilmars Hanssonar af stórlaxi úr Laxá í Aðaldal.
Það eru all hrikalegar tölurnar yfir stórlaxa sem við höfum heyrt frá Laxá í Aðaldal og ljóst að engin hérlend á hefur tærnar þar sem hún hefur hælana í þeim efnum.
VoV lagði land undir fót í vikunni sem er að líða og fyrir einhverja furðulega tilviljun hittum við Orra Vigfússon á bensínstöð á Vopnafirði. Hann var þá nýbúinn að safna saman tölum úr Laxá og á vef LV má sjá heildartöluna 881 lax miðast við s.l. miðvikudagskvöld þann 11.ágúst. Orri sagði okkur að þar af væri svæði Laxárfélagsins með eitthvað á sjötta fundrað og megnið af restinni væri á svæðum Nestorfunnar. “Við erum með um 70 laxa á Laxárfélagssvæðunum sem eru með meðalvigtina 20 pund, eða á bilinu 18 til 22 pund. Síðan er annað eins hlutfall af þessu á Nessvæðunum þannig að Laxá er með um eða yfir 100 svona laxa sem er með ólíkindum og ár og dagur síðan að annað eins hefur sést þó að áin hafi alla tíð verið fræg fyrir svona afla,” sagði Orri.
