Allt að gerast í Hlíðarvatni og víðar

Silungsvötnin hafa verið að lifna að undanförnu. Myndir Heimir Óskarsson.
Líkt og við greindum frá í vikunni, þá er mikið fjör í Hlíðarvatni og allt að gerast. Greinilegt samkvæmt fréttum, að mai hefur verið góður og vatnið komið vel undan vetri ef svo má segja.

Einar Falur, einn af okkar dyggu tíðindamönnum, var þar í gærmorgun og stoppaði í tvo tíma. „Þetta var í stíl við fréttir, ég landaði 12 bleikjum á tveimur tímum og missti slatta. Þetta voru 1 til 1,5 punda fiskar, frábærar matbleikjur. Ég byrjaði með Peacock og Kolbein í dropper og tónninn var gefinn í fyrsta kasti þegar það var fiskur á báðum flugum. Það var mikið af fólki að veiðum allt í kring um mig, og það voru allir meira og minna í fiski þannig að þessi mánuður lítur mjög vel út í Hlíðarvatni,“ sagði Einar Falur, en fyrr í vikunni sögðum við frá tveimur veiðimönnum sem lönduðu um 90 fiskum á ca 4 klukkustundum.
Tölur liggja ekki fyrir, enda kannski ekki aðalmálið, heldur sú staðreynd að menn eru að lenda í fínum skotum sem segir okkur að vorið er komið og fiskur er að taka.
Þá höfum við nýverið heyrt af góðum skotum bæði í Kleifarvatni og Þórisstaðavatni í Svínadal ofan Hvalfjörðs. Í Kleifarvatni lenda menn kannski í því að þeir eru að veiða og þá kemur urriðatorfa fram hjá. Næsa hálftímann eru menn síðan að setja í fisk. Í einu tilviki sem við heyrum um var fiskurinn nokkuð langt úti þannig að menn gripu til þess að kasta spinnerum og gaf það góða raun. Á annan tug fiska náðist á land á meðan gangan var á svæðinu. Mest 1-2 pund en eitthvað af stærri fiskum. Í Þórisstaðavatni hefur og veiðst vel á stundum, mest frekar smár fiskur, en svo bar við um daginn að menn veiddu væna urriða 2-4 punda með því að veiða djúpt með maðki og sökku. Það er festuhætta fólgin í því, en fiskurinn var að taka niðri og því fórnandi nokkrum önglum.
