votnogveidi_Fors_2009-02
eru þau að fáann

Mikil laxgengd í Soginu og tröllslegar bleikjur í bland

17.7.2009

Maríulax úr Soginu

Helgi Freyr Tómasson veiddi Maríulaxinn sinn í gær. Málið er þó ekki fullafgreitt af hans hálfu, enn á eftir að gleypa uggadjöfulinn! Mynd Tómas Sigurðsson. Báðar myndir birtar með leyfi frá Sogsmönnum.

Það er mikið líf í Soginu þessa daganna og góð skot hafa verið a fog til síðan í lok síðasta mánaðar, en fiskur þótti byrja að ganga og veiðast með fyrra fallinu þetta árið. Þá hafa nokkrar beinlínis voðalegar bleikjur veiðst í ánni.

Á vefsíðu veiðiklúbbsins Sogsmenn, www.123.is/sogsmenn/  má í dag sjá færslu Þar sem greint er frá þvi að þeir félagar veiddu 12 laxa í Ásgarði í gær og misstu annað eins. Þessir kappar kunna reyndar afar vel á hið vandveidda Sog, en eigi að síður veiðir enginn grúppa 12 laxa uppúr Soginu á einum degi nema að líflegt sé undir. Ekki er nokkur vafi að sú staðreynd að enn eru á þurru nokkur net í Ölfusá skiptir hér gríðarlega miklu máli, til marks um það er að í fyrra var einnig mjög lífleg veiði í ánni. Er þetta í beinu samhengi við uppkaup SVFR á netum í Ölfusá.

Risableikja úr Soginu

Hér er Tómas með bleikjuna hrikalegu.

Annars erum við ekki með tölur úr Soginu, aðeins að nefna að við höfum heyrt af skotum af öllum svæðum. Það gerist t.d. ekki aá hverju ári að fyrstu laxarnir á Syðri Brú veiðist þegar vika lifir enn af júní, en það gerðist einmitt á dögunum. En það býr fleira í Soginu en lax, í ánni er einhver hrikalegasta vatnableikja sem fyrirfinnst hér á landi. Hún er dularfull í meira lagi og virðist stundum hverfa. Svo dúkkar hún upp. Stundum fá nánast allir fisk, en oftar en ekki þarf sérfræðinga til. Við erum ekki að tala um neina smá fiska. Ein sem Tómas Sigurðsson úr Sogsmannaklúbbnum veiddi í lok júní slagaði hátt í 10 pund. Í sama túr fengu þeir félagar nokkrar og þær stærstu sem voru vegna 7 punda. „Já þetta er svakalegur fiskur og sterkur eftir því, maður þorir varla að nefna tölur en ég hef fengið nokkrar 7 punda og þessi var mun þykkari en þær,” sagði Tómas í sömu andrá og hann gaf okkur leyfi til að birta meðfylgjandi myndir af vefnum þeirra félaga,sjá slóð að ofan.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica