Fleiri risalaxar skráðir til bókar

Stefán Kristjánsson, félagi í veiðiklúbbnum Sogsmenn, með 100 cm drjóla úr Húseyjarkvísl og hann er orðinn all svakalega leginn þessi!. Það eru fleiri myndir af stórlöxum og smærri löxum á heimasíðu Sogsmanna, en hér er slóðin: www.123.is/sogsmenn/
Því var skotið að okkur fyrir skemmstu hvort við hefðum ekkert annað að skrifa um heldur en stórlaxa. Svarið var jú,jú, heilmikið, maður kemst bara ekki í það fyrir stórlöxum. Nú getum við sagt frá tveimur í viðbót og síðan spurning hvort að hlé verði á þessum stórlaxadrætti. En við reyndar efumst um það.
Sem sat tveir til viðbótar alveg nýir og svo einn sem við einhvern vegin náðum að gleyma. Sá er síðan 5.9 og var 11 kg, 22 pund úr Kirkjuhólmakvísl á Nesveiðum í Laxá í Aðaldal. Þá segja Vatnsdælingar frá nýjum 100 cm 20 punda hæng sem tók fluguna Maríu í Smiðshyl. Er það annar tröllabelgurinn úr þeim hyl á fáum dögum og níundi 100 cm-plús laxinn úr Vatnsdalsá í sumar.
Þá sagði Þröstur Elliðason okkur frá því að “annar” 20 pundari hefði veiðst í Breiðdalsá í gærmorgun og hefur verið dálítið hlé á risalöxum þar eftir mikið bingo þar í júlí. Laxinn veiddist í Gljúfrahyl á spón og var 98 cm og 10 kg, eða 20 pund. Vigtaður. Orðinn leginn, en mjög þykkur eigi að síður. Þeir eru orðnir þó nokkrir 20-plús laxarnir úr Breiðdalnum í sumar.
