Það eru enn til stórar bleikjur í Soginu

Hvað á maður að segja....vörpulegur veiðimaður með vörpulega bleikju? 7 punda bleikjuhængur úr Soginu að velli lagður. Mynd af vef Sogsmanna.
Veiðimaður nokkur fékk nýverið 7 punda bleikju í Soginu. Enginn smá fiskur þar á ferð eins og myndin gefur til kynna, en hana fenguð við að láni af vef Sogsmanna, Veiðifélagið Sogsmenn www.123.is/sogsmenn sem er veiðiklúbbur sem leggur mikla stund á Sogið. Þetta er hrikalegur fiskur.
Nafn veiðimannsins kemur ekki fram á umræddir bloggsíðu, en þar segir hann eftirfarandi: „Ég fékk einn lax á Ásgarðsbreiðu sem tók Frances í fyrsta kasti sem var frábært en samt fellur hann í skuggann af bleikjutröllinu sem ég landaði eftir 30 mín baráttu á léttar græjur nr 6. Taugarnar voru þandar til hins ýtrasta minnugur síðasta túrs þar sem við misstu hverja af annari. Þegar styttist í löndun datt kvikindið af þannig að ég varð að taka til fótanna og elta hana uppi sem tókst með ágætum þannig að ég stóð uppi með rúmlega 7 punda tröll sem þætti góð stærð í mörgum laxveiðiám. Fyrir utan þessa tvo fékk ég nokkrar vænar bleikjur auk þess að missa nokkrar eins og venjulega enda smáir krókar á ferð.“
Það er greinilegt aðs tórbleikjan í Soginu lifir gíðu lífi þó að stundum sjáist hún lítt og menn velti fyrir sér hvort að eitthvað hafi komið fyrir stofninn.
