votnogveidi_Fors_2009-01
eru þau að fáann

Sitt lítið af hverju, aðallega góðar fréttir

2.8.2007

Víða er veiði annað hvort beinlínis góð, jafnvel frábær, og annars staðar er þetta allt að koma. En landsins gæðum er misskipt og annars staðar er bara kropp í vatnsleysi. Við heyrðum í nokkrum veiðigörpum í gærkvöldi, bæði nafngreindum og ónafngreindum.

 Jónas Halldórsson með lax úr BreiðdalsáÞað er nauðsynlegt að hlera Þröst Elliðason af og til, enda með mikilvægar ár í farteskinu. “Það komu 9 laxar úr Breiðdalsá í morgun,” sagði Þröstur í gærkvöldi, og hélt áfram: “Ég er alveg rólegur, við erum komnir með um 90 laxa á land, vorum í 150 á sama tíma í fyrra. Miðað við að göngur eru seinni hér en venjulega eins og víða annars staðar, og miðað við ferlegt vatnsleysi, þá er ég bara mjög sáttur, ekki síst vegna þess að menn eru að sjá mikið af laxi og það er stöðugt að bæta í þessa daganna. Þetta er því bara að batna hér við Breiðdalsá og sama er að segja um Kaldá, þar er fyrsti laxinn kominn á land og við erum farnir að sjá dálítið af laxi. Aðaltíminn er að fara í hönd þar. Bleikjuveiðin í Fögruhlíðará hefur hins vegar dalað nokkuð og síðan er gruggið í Jöklu komið aftur vegna þess að göngin voru ekki búin. Hún verður því með gamla sniðinu fram eftir ágúst, þannig að þessi tilraun með Jöklu frestast að mestu um eitt ár. Það er samt alltaf möguleiki að veiða vatnaskil bergvatnsána við Jöklu og verður það gert í ágúst.”

 Jónas Halldórsson að landa laxi í Breiðdalsá í gærmorgun. Mynd frá www.strengir.is

Þröstur sagði að það litla sem rignt hefði fyrir austan hefði litlu skilað í árnar, utan að Tinnudalsá, þverá Breiðdalsár, hefði náð að rífa sig upp í vikunni og hefði þá strax glæðst mjög þar. Ofan ármóta hennar og Breiðdalsár er hins vegar afar vatnslítið og lítið komið þangað af laxi. Svipaða sögu er að segja af Laxá í Nesjum en þar hafa nokkrir laxar veiðst í svokölluðum Ármótum neðst í ánni, en mikið af laxi er þar uppsafnaður og hoppar endalaust og bíður eftir rigningu og vatnavöxtum, því áin sé erfið uppgöngu.

Þá sagði Þröstur að Hrútafjarðará væri komin með 50-60 laxa og síðasta holl hefði verið með 11 laxa. Veiði teldist góð miðað við erfitt vatnsleysi sem er svo slæmt að lax gengur varla upp fyrir Bálk, en fyrir þá sem ekki vita þá er það hylurinn undir brúnni á þjóðvegi númer eitt. Mikið líf er í hyljum þar fyrir neðan, en laxinn oft að taka illa.

Þá heyrðum frá manni sem þekkir vel til á norðausturhorninu að veiði í Þistilfirði væri í lagi þó hún hefði stundum verið betri. Holl sem var nýlega í Sandá var með 16 laxa og annað í Svalbarðsá með 12 stykki. Eitthvað er þetta tveggja ára fiskur, annars smálax. Þá er Hafralónsá á líku róli.

Sunnanlands er altl saman yfirleitt í góðum gír. Veiði í Ölfusá við Selfoss er komin í um 170 laxa sem er miklu betra en síðustu ár. Góð veiði og mikill lax hefur verið við Langholt og veiðimaður sem dokaði við í Stóru Ármótum á þriðjudag bæði sá og setti í fiska þó hann næði ekki að landa fiski. Þannig að þar er líf líka. Veiðimaður sem var í byrjun viku í Soginu sagði skemmtilega frá: “Þetta var svo mikil gleði, manni datt helst í að þetta væri eins og var í gamla daga. Að vísu var þetta eins árs lax, en stór og afar fallegur smilax. Við vorum í einn dag í Alviðru, veiddum alls ekki í stressi en settum samt í tíu laxa og það var fiskur að stökkva um allt. Frábært, netin eru að fara upp og þetta er að verða veiðiparadís á ný,” sagði kappinn

Gylfi Ingason kokkurmeð vænan lax úr Skógá

Gylfi Ingason, kokkur í Þrándargili við Laxá í Dölum átti frí um daginn og skrapp þá í Skógá. Fékk þar þennan fallega 2 ára hæng sem hann sleppti. Mynd send okkur af Ásgeiri Ásmundssyni.

Ásgeir Ásmundsson er leigutaki Skógár og hann sagði gang mála þar frábæran í laxveiðinni, en bleikjuveiðin væri lakari en í fyrra þótt hún væri alls ekki slök. “Júlí gaf 32 laxa, en í fyrra voru þeir 19 í júlí sem þó var metárið fram að því. Þá voru komnar 350 bleikjur. Síðasta holl var með 13 laxa og 30 bleikjur. Þann 31.júlí veiddust 8 laxar og er það metlaxveiði í ánni á júlídegi. Þá er gaman aðs egja frá því að menn hafa verið minna að nota túpur í Skógá og farið í venjulegar flugur, jafnvel verið að hitsa þó að svoleiðis hafi verið talið ómögulegt í ánni af því að hún er svo köld. En það er greinilega allt til í þessu.”

Fyrstu laxar sumarsins úr Skógá

Veiðimaður með fyrstu laxana úr Skógá á dögunum auk tveggja sílspikaðra bleikja. Mynd Sindri Sveinsson.

Ásgeir er einnig með austurbakka Hólsár og þar hafa verið mikil ævintýri að undanförnu. “Áin hefur breytt sér neðst við austurbakkann, þar eru nú komnar tvær rennur saman, önnur að vestan og hin að austan og mér sýnist að allur laxinn komi nú fyrst upp með austurbakkanum, ekki bara laxinn úr Eystri Rangá og Þverá eins og áður, heldur laxinn úr Ytri Rangá líka, því vesturbakkinn þarna neðst er orðinn mjög grunnur. Það hafa verið hrikalegar göngur þarna síðustu daga. Ég var þarna sjálfur á þriðjudaginn. Fór niður eftir en morgunflóðið var um klukkan 7. Ég var seinn fyrir og ekki kominn fyrr en um klukkan 9 og hélt ég væri búinn að missa af öllu saman. En það var eitthvað annað og þarna fékk ég alveg ótrúlega upplifun. Það var beinlínis morandi af laxi þarna, fiskur á lofti um allt og fiskur á hjá mér í að minnsta kosti öðru hverju kasti. Flestir sluppu, hann tók svo grant, en ég lenti í því oftar en einu sinni að missa lax og setja í annan í sama kasti. Ég var með tólf þarna sem ég náði, en missti milli 40 og 50.

Rangárnar hafa ekki farið varhluta af þessum göngum, Eystri Rangá flaug yfir þúsund laxa snemma í vikunni og Ytri Rangá oft að gefa 50 til 60 laxa á dag. Veiði hefur líka verið að glæðast í Þverá í Fljótshlíð eins og við gátum um á þriðjudag.

 Ingólfur Ásgeirsson með flottan stórlax úr VatnsdalsáFyrir norðan reytist uppúr helstu stórnöfnunum, Víðidalsá, Vatnsdalsá, Miðfjarðará, en það er vatnslítið, auk þess sem Vatnsdalsá á við sinn venjulega vandal að Flóðið hitnar mikið í hlýindum. Þó hefur dregið úr að undanförnu enda hefur eitthvað glæðst fyrir ofan það. Það koma fregnir um þokkalegt gengi, 9 á einum morgni í Vatnsdalsá, 18 á einum degi í Miðfjarðará á tíu stangir. Ekkert mok, en nóg til að menne ru á tánum og eru að sjá fiska og setja í þá. Að ofan er Ingólfur Ásgeirsson með 98 cm hæng úr Hnausastreng í Vatnsdalsá fyrir skemmstu. Þetta er ekki langt frá því að vera 20 punda lax, líklega 18 til 19 pund miðað við lengdina. Myndina fengum við að láni af www.vatnsdalsa.is en þar birtast reglulega fregnir af gangi mála í ánni.

Af minni laxveiðiám þá hafa veiðst laxar í Hjaltadalsá og Kolbeindalsá að undanförnu, Kolkusvæðinu, að sögn Þórarins leigutaka svæðisins, en það er í Skagafirði sem kunnugt er. “Laxveiðin hefur verið að glæðast að undanförnu og bleikjuveiðin er líka betri en í fyrra, komnar um 120 á land og algengt að hollins éu með 15 til 20 stykki og er algengast að þær séu 1,5 til 2 pund en þær stærstu eru allt að 4 pund. Það má segja að besti tíminn sé að byrja í ánni, en oft veiðist vel í henni síðsumars og á haustin. Svo erum við líka með gæsaveiðiaðstöðu sem fylgir pakkanum,” sagði Þórarinn.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica