votnogveidi_Fors_2009-05
eru þau að fáann

Magnaðar stundir í Hlíðarvatni

10.5.2007

Morgunstund við Hlíðarvatn

Þetta er bara svo mögnuð mynd, lífríkið að vakna á stiltum vormorgni. Mynd Tómas Sig.

Enn berast frábærar veiðisögur frá Hlíðarvatni í Selvogi og greinilegt að menn hafa verið að hitta á þessar töfrastundir þegar engu er líkara en að allt líf sé að kvikna í einu. Þessu hafa menn lent í á hverju vori og aldrei gleymt því.

Stefán Kristjánsson með 4 punda bleikju úr Hlíðarvatni

Stefán Kristjánsson með 4 punda bleikju úr Hlíðarvatni. Mynd Tómas Sig.

Við heyrðum í Tómasi Sigurðssyni sem var að koma úr Hlíðarvatni ásamt félaga sínum Stefáni kristjánssyni. “Við vorum að koma úr Hlíðarvatni og fengum mjög góða veiði.Rúmlega 100 bleikjur veiddust á 2 stangir, mikið af smáum fiski, en mjög vænar bleikjur innan um, allt að 2 kg,” sagði Tómas. Þeir félagar veiddu með leyfi frá Stangaveiðifélagi Selfoss og voru þeir afar hrifnir af þeim lagfæringum sem gerðar hafa verið á húsakynnunum, sem þeir sögðu orðin “glæsileg”.

Tómas Sigurðsson með fallega veiði úr Hlíðarvatni

Tómas Sigurðsson með troðfullan háfinn af vænum bleikjum. Mynd Stefán Kristjánsson.

Á einni myndinni má sjá hvernig rykmý fyllir nánast himininn. Í þessu hafa menn lent, veðuraðstæður eru þarna með þeim hætti að vindur á það til að detta í dúnalogn og við það hlýnar. Ryðjast þá upp ryksmýsstrókar sem eru oft og tíðum svo þéttir að engu er líkara en að þoka leggist yfir. Á sama tíma fer bleikjan að vaka um allt vatn og betur heyrist í farfuglunum í vindleysinu. Oftar en ekki fer fiskur líka að taka vel við þessar aðstæður, þá gjarnan eftir að hafa verið tregur fram að því. Þetta eru magnaðar stundir sem sumir Hlíðarvatnsmenn hafa enn ekki fengið að upplifa, en aðrir oftar en einu sinni. Hér að neðan eru nokkrar pattaralegar Hlíðarvatnsbleikjur í háfnum. Myndin er tekin af Tómasi Sigurðssyni.

Fallegar bleikjur úr Hlíðarvatni




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica