Netin fyrir austan: Viðræður í gangi við „aðra veiðileyfasala“
Stóraukin veiði í Soginu og Stóru Laxá hefur leitt af sér átök um veiðisvæðin og verðhækkanir, en aukningin er að stærstum hluta rakin til netauppkaupa sem SVFR hefur haft veg og vanda af. Hver skyldi nú verða framtíð þess verkefnis?
Altalað var að SVFR og Lax-á náðu ekki saman og gaus nánast upp fjandskapur þegar netauppkaupin voru í bígerð þar eð bæði SVFR og Lax-á eru með stór svæði á sínum snærum á þessu vatnasvæði, SVFR með Stóru Laxá og Sogið, Lax-á með gönguseiðaverkefnið í Tungufljóti og Tannastaðatanga. Nú hefur Lax-á náð Stóru Laxá og einu af svæðum Sogsins. Í draumaheiminum stæðu báðir þessir aðilar þétt saman um uppkaup neta í Ölfusá og Hvítá þrátt fyrir harða samkeppni um svæðin. En raunveruleikinn varð allt annar og Lax-á kom alls ekki að netaverkefninu.
Frá Hvítá í Árn.Mynd Golli
En við breytinguna á svæðunum, að Lax-á hafi nú Stóru Laxá og Syðri Brú í Sogi, auk þess sem verð veiðileyfa í báðum ám hefur hækkað umtalsvert í framhaldinu, hljóta menn að spyrja sig hver framvindan verður í ljósi þess að gerðir samningar SVFR við nokkra lykilbændur á netasvæðunum hafa ýmist runnið sitt skeið eða eiga skammt eftir. Á vef SVFR, http://www.svfr.is/ er nú all líflegur spjallþráður þar sem spjallverjar hafa skotið mörgum spurningum að stjórn SVFR í kjölfarið á útgáfu verðskrár félagsins. Bjarni Júlíusson formaður SVFR hefur verið duglegur að svara. Sumar spurningarnar hafa verið um netauppkaupin og framtíð þeirra. Á þræðinum eru fróðleg viðbrögð Bjarna við þeim, einnig athyglisvert innlegg frá Guðmundi Stefáni Maríassyni nýhættum formanni SVFR.
Bjarni segir: „Ég held að flestir séu þeirrar skoðunar að veiðiaukninguna í Stóru Laxá og Soginu verði að skýra með netauppkaupum SVFR. Sogið skilaði 1.300 löxum síðasta sumar. Á árunum 1995 - 2000 var veiðin í Soginu 300 - 400 laxar en eftir að netin fóru upp, hefur hún vaxið talsvert ! Netasamningarnir standa þannig að það er eitt ár eftir af samningnum við Gunnar á Fossi og SVFR mun að sjálfsögðu standa við greiðslur til Gunnars. Því miður hafa aðir veiðileyfasalar ekki komið að þessu verkefni í þeim mæli sem við vonuðumst til, þó vissulega hafi komið stuðningur m.a. frá Stangaveiðifélagi Selfoss og veiðiréttareigendum við Langholt og Stóru Laxá. Við höfðum vonast til að Veiðifélag Árnesinga tæki við verkefninu en svo virðist ekki ætla að verða. Það er alveg ljóst að SVFR getur ekki axlað þessar byrðar eitt og sér og við munum ekki halda áfram með verkefnið eftir árið 2011"
Og ekki er innlegg GSM síður athyglisvert, en af því má væntanlega ráða að SVFR og Lax-á hafi sest niður til viðræðna þrátt fyrir allt og að GSM sé vongóður um niðurstöðu þeirrar umræðu. Það örlar líka á dálítilli mótsögn við þaðs em núverandi formaður hefur sagt, en GSM segir: „Varðandi netamálin þá má það koma fram að það eru viðræður í gangi um þátttöku annarra veiðileyfasala í því verkefni og á ég ekki von á öðru en það skili árangri.“
