Eystri Rangá hæst sumarið 2010
Eystri s.l. sumar, Hjálmar Árnason að þreyta einn 16 punda.
Hér koma nokkrar lokatölur úr laxveiðinni til viðbótar, m.a. úr báðum Rangánum, Affalli og Þverá í Fljótshlíð.
Eystri Rangá endaði efst eins og allt útlit var lengst af fyrir, en þó dró aðeins saman með Rangánum á lokasprettinum. Eystri Rangá endaði með 6.280 laxa, sem er bæting um 2.051 lax frá fyrra sumri. Munar um minna en það. Ytri Rangá var hins vegar langt frá sinni síðustu tölu þrátt fyrir að vera næst aflahæsta á landins. Hún endaði, ásamt vesturbakka Hólsár, með 6.210 laxa, aðeins 70 löxum minna en Eystri Rangá, en þrátt fyrir fína veiði, er þetta 4.539 löxum minna en í fyrra, þegar lokatalan var 10.749 laxar.

Síðan eru hér lokatölur úr Affallinu og Þverá í Fljótshlíð, en báðar eru á hendi Einars Lúðvíkssonar. Hann sendi okkur línu: “Ég er loksins kominn með lokatölur úr Affallinu og Þverá og endaði Affallið í 1021 löxum og Þveráin í 303 löxum.” Fyrir báðar árnar eru þetta metveiðitölur og er árangur Einars í heimtum sérlega glæsilegur, sérstaklega í Affallinu, en á myndinni má sjá nokkra af mörgum sem lentu í moki í ánni.
Þá er hér að lokum leiðrétting á annarri tölu frá því um daginn, en við vorum með Fnjóská í rúmlega 1.020 löxum. Rétt lokatala er hins vegar 1.054 stykki, sem er gríðarlega öflug metveiði, en fyrra met er gamalt og hljóðaði upp á 555 laxa.
