Enn er veitt í Rangánum

Við Ytri Rangá, en þar er enn veitt, sem og í Eystri Rangá. Mynd Stefán Sigurðsson.
Það var aðeins orðum aukið að allt væri búið í ár og mál að snúa sér að rjúpu og gæs eða bara að bíða eftir 1.apríl. En það mun veitt í Rangánum út mánuðinn og biðjumst við velvirðingar á ónákvæmninni í fyrri frétt.
Það var svo sem enginn að benda okkur á vitleysuna, kannski lítil stemming eftir, enda farið að vera kalt á árbökkunum. En svo sáum við að Lax-á er að bjóða mikinn afslátt í Ytri og heyrðum í manni sem ætlaði að veiða í Eystri einmitt í dag og þá lá þetta fyrir. Sá er skrapp í Eystri sagði bræður sína hafa tekið tvær stangir í Eystri fyrir fáum dögum og landað 16 löxum. Það kom þeim skemmtilega á óvart að tveir voru grálúsugir og nokkrir til viðbótar vel bjartir. Sama er að segja um Ytri, menn hafa séð nokkra bjarta og nýlega þar upp á síðkastið og því enn von til að setja í eitthvað sem gagn er í. Það voru því alls ekki lokatölur úr ánum sem við birtum fyrir skemmstu og leiðréttist það hér með.
