Eldvatn og Tungulækur í gír
.jpg)
Þetta er við Eldvatn, en myndin er ekki ný af nálinni. Við vitum ekki hver tók myndina, en fengum hana hjá leigutakanum Pétri Péturssyni.
Dragárnar í Vestur Skaftafellssýslu hafa ekki verið beysnar eða aðlaðandi til veiða í endalausum slagveðrum að undanförnu, en lindárnar sem koma undan hrauninu hafa verið að gefa vel, t.d. Eldvatn og Tungulækur.
Á vefnum http://www.veidi.is/ er greint frá miklu skoti í Eldvatni, 3 daga holl hafi landað þar 49 birtingum og 3 löxum. Birtingarnir hafi verið allt að 12 punda fiskar og flugur á borð við Black Ghost og hvítur Nobbler hafi verið gjöfular. En athygli vakin á því að torfært sé nú með ánni vegna aurbleytu.
Leigutakinn hafði heyrt af þessu holli, en fyrr í haust sagði hannokkur að veiði hefði farið afar vel af stað og jafnvel holl sem voru í ágúst verið að afla vel. Eldvatn hefur sveiflast mjög í veiði og all nokkur hinna síðari ára hefur lítil veiði verið skráð úr því. Kannski er komin uppsveifla.
Fallegir birtingar úr Tungulæk.
Það sem bjargar Eldvatni og veiðimönnum sem þar stunda veiðiskap í svona veðurfari er að þetta er að mestu leyti lindarvatn sem kemur undan hrauni. Það getur orðið vatnsmikið, en slíkar ár gruggast mjög seint og þarf mikið til. Þá sömu sögu er að segja um Tungulæk í Landbroti sem kemur einnig undan Eldhrauni og er í byrjun sama áin og Grenlækur, en þær klofna fljótlega. Ekki höfum við tölur úr Tungulæk, en heyrðum af veiðimönnum sem voru þar og veiddu mjög vel á meðan menn norpuðu í kofum við dragár og biðu eftir uppstyttu.
En þó verður að gæta sanngirni, hópur sem var í Geirlandsá þegar mesta flóðið gekk yfir, landaði samt 12 fiskum. Dugnaðarforkar þar á ferð og væntanlega gjörkunnugir ánni, því það getur verið afar erfitt að finna fisk í kolgruggugu stórfljóti.
