votnogveidi_Fors_2009-03

eru þau að fáann

DSC01995

Eldvatn og Tungulækur í gír - 30.9.2010

Dragárnar í Vestur Skaftafellssýslu hafa ekki verið beysnar eða aðlaðandi til veiða í endalausum slagveðrum að undanförnu, en lindárnar sem koma undan hrauninu hafa verið að gefa vel, t.d. Eldvatn og Tungulækur.

 
Midfjardara-agust-2010-B-CROPP

Metið slegið í Miðfjarðará annað árið í röð - 29.9.2010

Hver hefði trúað því að nýtt met yrði sett í Miðfjarðará á þessari vertíð eftir ótrúlegt met i fyrra, sem hljóðaði upp á 4.004 laxa? En nú er veiði lokið og metið er fallið,  4043 laxar voru bókaðir.

 
Garibald Ívarsson með stóra hrygnu úr Hauksholu

Hástökkvararnir hylltir - 29.9.2010

Hjálmar Árnason hefur svo gott sem tryggt sér nafnbótina „pistlahöfundur“ hjá okkur. Það hefur komið nokkurn vegin af sjálfu sér vegna dugnaðar hans að senda okkur hugleiðingar og fréttir. Hér gerir hann upp sumarið og hyllir hástökkvarana.

 
bjarnarfoss í stórflóði

Gríðarleg flóð í ám í V-Skaft - 28.9.2010

Feiknalegt vatn er í ám í Vestur Skaftafellsýslu eftir gríðarleg vatnsveður. Veiðimenn sem voru við Tungufljót töldu sig aldrei hafa upplifað ána jafns tröllslega.

 
Arnór með vænan lax

Tíðinda að vænta af sjóbirtingsslóðum? - 26.9.2010

Ekki er ólíklegt að dragi til tíðinda á sjóbirtingsslóðum í Vestur Skaftafellssýslu nú umhelgina og næstu daga, enda hafa vatnsveður gengið þar yfir og þegar það gerist á þessum tímapunkti að hausti þá flytur fiskur sig venjulega úr jökulvötnum upp í bergvötn.

 
Matti losar úr laxi í Mýrarkvísl

Nokkrar lokatölur - 25.9.2010

Laxveiðinni er nú að ljúka, aðeins nokkrar sleppitjarnarár haldast opnar fram eftri næsta mánuði. Hér koma nokkrar lokatölur með samanburðartölum frá síðustu tveimur árum.

 
104 cm úr Hnausa 2010

Stórlaxar 2010 – Vísbendingar um breytingu? - 22.9.2010

Eftir allar ræðurnar um að stórlax sé að hverfa úr íslenskri náttúru kom sumar þar sem stórlaxar voru mál málanna...

 
103 cm úr Laxá

Laxá lokað með stórlaxahvelli - 20.9.2010

Eru lesendur nokkuð orðnir leiðir á stórlaxafréttum? Alla vega linnir þeim nú í bili a.m.k. frá Laxá í Aðaldal því þar er nú veiði lokið og var smiðshöggið rekið hjá Nesbændum með fjórum 20plús í lokahollinu!

 
skvísa með 98 cm hæng

Enn eru stórlaxar áberandi - 20.9.2010

Á sama tíma og sérfræðingar VMSt boða útrýmingu stórlaxa, þá halda þeir uppi veiðinni víða um land í fjarveru smálaxa. Flott sumar í Laxá í Aðaldal og í Vatnsdalsá byggir á stórlaxagöngum, í Vatnsdalnum er talað um helmingaskipti…

 
Lax á í Búðardalsá

Dalirnir koma nokkuð vel út - 20.9.2010

Það hefur verið klippt og skorið og svart og hvítt í Dölunum í sumar, þurrkar herjað á vatnsbúskap, samt fullt af laxi, en skilyrði haft áhrif á veiði. Þetta er þó á heildina ltiið gott sumar.

 
Frúarhylur

Stuð í Vatnsá - 18.9.2010

Eins og við höfum greint frá þá er Vatnsá í Mýrdal líklega móðir alra laxveiðiáa á Íslandi í dag, áin með mestu meðlaveiina á stöng. Jón Skelfir sendi okkurmyndir í vikulokin…

 
Þröstur Elliðason með glæsilegan 17 punda lax úr Breiðdalnum

Breiðdalsá yfir strikið - 16.9.2010

Breiðdalsá rauf þúsund laxa múrinn í gærkvöldi í fyrsta skipti frá því að skráningar hófust. Loks tókst það hjá Þresti, oft verið innistæða fyrir því áður en skilyrði spillt fyrir. Nú kom það!

 
Anna Dóróthe með 15 p úr Hvannahillu

Mikil veisla í Geirlandsá - 16.9.2010

Það er engin spurning að sjóbirtingsvertíðin í Vestur Skaft er að byrja með mikilli flugeldasýningu sem veit vonandi á gott fyrir “besta tímann” sem fer nú í hönd.

 
Fallegt við Fljótaá

Lúsugir 2 ára laxar á ferðinni - 16.9.2010

Sums staðar er lax enn að ganga þótt seint sé, jafnvel “tveggja ára” laxar sem eru þó vanir að koma með fyrstu skipunum. Þetta hafa menn t.d. séð í Fljótaá, en við fengum skeyti frá Róbert Haraldssyni á Sigló í gærkvöldi.

 
Morgunstund við Hlíðarvatn

Hlíðarvatn enn að gefa - 15.9.2010

Frést hefur af fínum skotum í Hlíðarvatni í Selvogi að undanförnu, en það eru samt ekki margir að veiða þar þessa daganna...

 
APRIL-2010_-12

Draumur að rætast fyrir austan - 15.9.2010

Það er draumur um það bil að rætast austur í Breiðdalsvík þar sem leigutaki og ræktandi Breiðdalsár er að horfa upp á ána sína sigla í fjögurra stafa tölu í fyrsta skipti.

 
Skógárlax og skoga.is

Hefur rofað til í Skógá - 15.9.2010

Aðeins hefur rofað til í Skógá og segja má betra seint en aldrei. Talsvert hefur gengið af laxi, en áin er samt erfið vegna ösku og gruggs.

 
2010-09-Hrutafjardara---19

Sólardagur í Hrútafjarðará - 13.9.2010

Heimir Óskarsson, einn okkar þremenninga sem eigum og rekum VoV, var í Hrútunni fyrir skemmstu og upplifði eftirminnilegan veiðidag.

 
Boltabirtingur úr Fossálum

Sjóbirtingströll mölvaði stöngina - 13.9.2010

Menn eru farnir að setja í stóra sjóbirtinga fyrir austan eins og lög gera ráð fyrir. Einn mölvaði stöng nýverið í Fossálum. Hermt er að þar hafi tröll verið á ferðinni.

 
steinsmýrarvötn 2010

15 punda úr Steinsmýrarvötnum - 12.9.2010

Sjóbirtingsgöngurnar sem gefið hafa góða veiði fyrir austan að undanförnu hafa einnig skilað sér í Steinsmýrarvötn.

 
boltafiskar úr Veiðivötnum

Veiðivötn: Frábær veiði en ekki met - 10.9.2010

Veiði á stöng er lokið í Veiðivötnum og þó að veiði hafi verið frábær og margar vikurnar metvikur, þá var heildarútkoman þó ívið lakari heldur en metsumarið í fyrra.

 
Hitara_JBK_19

Andstreymisveiði bjargaði hollinu - 10.9.2010

Andstreymisveiði með púpum er mögnuð veiðiaðferð fyrir urriða og bleikju. En andstreymisveiði getur líka bjargað deginum á laxaslóðum. Hér er lítil saga frá Hítará.

 
risableikja

Sjóbleikjan í sókn á ný? - 10.9.2010

Það er alkunna að menn hafa talið sjóbleikju vera í töluverðri niðursveiflu og kennt um m.a. hlýnun og jafnvel í stöku tilvikum ofveiði. Í sumar hefur þó borist talsvert af mjög líflegum sjóbleikjufréttum.

 
Viggó Einar Hilmarsson með lax úr Frúarhyl

Vatnsá á toppnum í bili - 9.9.2010

Vatnsá lítur út fyrir að vera með hæstu meðalveiðina á stöng sem stendur og þar hefur verið mokveiði að undanförnu.

 
Vatnamót

160 á fjórum dögum í Vatnamótunum - 9.9.2010

Það eru umtalsverð tíðindi austur í Vestur Skaft þessa daganna. Áður var greint frá stórum skotum í Tungufljóti og Geirlandsá og nú eru Vatnamótin pökkuð af fiski. Þar hafa síðustu fjórir dagar gefið hátt í 160 sjóbirtinga.

 
Mjöll og Árni Pétur með 24 punda bolta

Verður í minningunni lengi, lengi, lengi.... - 8.9.2010

Mjöll Daníelsdóttir, bústýra veiðihúsa víðs vegar um Vesturland hefur verið að hasla sér völl sem flink fluguveiðikona síðustu árin. Hún landaði sínum stærsta laxi á Nesveiðunum nýverið, miklum höfðingja á Vitaðsgjafa.

 
Nauthylur í Víkurá

Góð tala í Víkurá en skilyrði mættu batna - 8.9.2010

Talsvert er af laxi í Víkurá í Hrútafirði og það verður án efa gaman hjá þeim sem fá ána ferska eftir vænt slagveður.

 
Balur Guðmundsson með flottan birting

Miklar sjóbirtingsgöngur í Vestur Skaft - 5.9.2010

Sjóbirtingsgöngur hafa verið sterkar síðustu daga í Vestur Skaft og heyrðum við í dag frábær tíðindi af bæði Tungufljóti og Geirlandsá. Mikið af fiski og stórir í bland eins og þær systur eru þekktar fyrir.

 
Birgir Bragason með 90 cm hæng

Sigurópið skar dalinn - 4.9.2010

Fínasta veiði hefur verið í Fljótaá í Fljótum þó svo að metinu frá í fyrra stafi engin hætta af atburðum þessa sumars. Nýlega veiddist þar býsna vænn fiskur hvers vigt menn geta velt fyrir sér

 
15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Gæti orðið metveiði í Kolku - 4.9.2010

Laxveiði í Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá, öðru nafni Kolku, hefur veriðs vo góð í sumar að það gæti dottið inn nýtt met. Leigutakinn Þórarinn Halldórsson segir að veiðin hafi verið sérlega góð að undanförnu.

 
2010 Leirvogsá 5

Smá viðbót við síðustu frétt - 3.9.2010

Sogið er komið yfir þúsund laxa, óhætt er að segja að það hafi verið búið að ná þeirri töfratölu þann 1.9 sem var viðmiðunardagsetninginn í síðustu frétt okkar. Við vissum þá ekki Torfastaðatöluna, en vitum hana nú.

 
Kaðalstaðahylur

Margar ár með meiri veiði nú en allt síðasta sumar - 2.9.2010

 Þann 1.september höfðu alls ellefu af viðmiðunarám LV á angling.is gefið meiri veiði heldur en allt síðasta sumar.

 
Gylfi að þreyta

Veiðiveisla norður í Reykjadal - 2.9.2010

Þær eru ansi margar árna og vötnin líka sem sjaldan rata í fréttirnar. Ein slík á er Reykjadalsá í Reykjadal í Suður Þingeyjarsýslu, en þar hefur veiði verið mjög góð í sumar þrátt fyrir að áin hafi um tíma verið afar vatnslítil vegna þurrka.

 
Tóti með 20 punda lax

Af birtingum og stórlaxi - 1.9.2010

Meira af snemmgengnum sjóbirtingi, en talsvert virðist vera gengið af birtingi í bæði Grenlæk og Tungulæk. Þá veiddist nýverið 20 punda lax í Tungulæk!

 


07 Stöð 2 og RUV komin í stellingarnar og fréttakonan er á tánum.

Laxinn er mættur!

Auðvitað er laxinn kominn upp að ströndinni og einhverjir eru byrjaðir að kíkja í árnar eins og fréttin um hrygnuna í Bíldsfelli staðfestir. Fyrstu árnar opna þann 5.júní og það er snarhlýnandi veður í kortunum. Hér kemur lýsing sjónarvotts....

 
2012 flóðið

Frábær byrjun í Flóðinu

Það er oft spáð í hvað sjóbirtingur hangi lengi í fersku vatni og yfirleitt er talið að þegar komið er fram í mai þá sé hann farinn. Rangt. Hrygningarfiskurinn jú, en allur geldfiskurinn ekki.

 
2012 fyrsti laxinn

Fyrsti laxinn 2012

Ekki þurfti að bíða lengi eftir fyrsta stangarveidda laxi sumarsins, en í morgun veiddist sá ágæti fiskur í Bíldsfelli í Soginu. Það var Smári Þorvaldsson sem veiddi laxinn, en hann var á bleikjuveiðum þegar hann sá hreyfingu sem var augljóslega ekki bleikja.

 
15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Fyrstu laxarnir ættu að vera mættir!

Nú er fimtudagurinn 18.5 og má með nokkurri vissu segja að fyrstu laxarnir séu gengnir í Hvítá í Borgarfirði. Næsti sunnudagur er 21.5 og þann dag sáust fyrstu laxarnir í Laxá í Kjós í fyrra.

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Var komið í gang fyrir hretið

Það hefur verið afskaplega lítið að frétta af bökkum vatnanna síðustu daga enda kannski ekki að undra eins og veðurfarið hefur verið. En fram undir síðustu helgi voru þó að berast fréttir af skotum hér og þar, þannig að vötnin voru byrjuð að taka við sér.

 
Albert Sævarsson þreytir urriða

SVAK með skemmtilega nýjung

Stangaveiðifélag Akureyrar bryddar upp á skemmtilegri nýjung í veiðileyfasölu þessa daganna. Hægt er að kaupa sérstakt Laxárkort með inneign upp á átta daga á þekktum urriðasvæðum.

 
Tómas Helgason með risaurriða úr Þingvallavatni

Veiðiportið eykur þjónustuna

Veiðiportið á Granda hefur lengi streðað við að halda verði niðri á boðlegum vörum. Nú hefur fyrirtækið opnað vefsíðu til að bæta þjónustuna.

 
KJOS-2008-06-19-LAXFOSS

Hreggnasi áfram með Laxá í Kjós

Hreggnasi hefur gengið frá endurnýjun á leigusamningi fyrir Laxá í Kjós til tveggja ára og þar með er á sama deginum tekið fyrir spennandi mögulegt útboð! Áður kom nánast sama frétt frá Norðurá.  Jón Þór Júlíusson staðfesti að samkomulag hefði náðst, en baðst undan að tala um krónur og aura.

 
23 Í Stekknum var Ólafur Vigfússon að flengja Spegilinn, en það var sama sagan þar....

Norðurá áfram hjá SVFR

Veiðifélag Norðurár og SVFR munu hafa náð samkomulagi um áframhaldandi leigu SVFR á ánni um komandi ár. Þar með verður ekkert af útboði því sem margur áleit að gæti orðið hið forvitnilegasta, enda SVFR verið lengur með Norðurá en gengur og gerist.

 
Minni-05

Í tilefni af komandi hreti

Veðurfar hefur verið með kaldara móti í vor þrátt fyrir fallega daga, en samt aflast vel víða, einkum þó á sjóbirtingsslóðum og í Þingvalla- og Elliðavatni. Nú er hret í kortunum....

 
urriði úr Þingvallavatni

Þingvallavatn og makríllinn

Haft er fyrir satt að hvað eftir annað séu að koma lífleg urriðaskot í Þingvallavatni. Fréttir berast af stórum, stórum urriðum sem eru að slaga upp í 20 punda þeir stærstu. En það berast einnig fregnir af óþverraskap.

 
2012 Gordon Ramsey í Tungulæk 2

Gordon Ramsey í góðum málum Tungulæk

Skoski strigakjafturinn og sjónvarpskokkurinn heimsfrægi Gordon Ramsey, var staddur hér á landi um helgina og veiddi m.a. væna sjóbirtinga í Tungulæk í Landbroti. Hér eru skemmtilegar myndir af þeirri uppákomu...

 
2012 Haus á stórfiski

Enn er birtingur á ferðinni!

VoV getur staðfest að enn er góð veiðivon á sjóbirtingsslóðum í Skaftárhreppi. Það eru hins vegar fáir að veiða þessa daganna, kannski að menn hafi ekki trú á birtingi í mai?

 
Afli 1.mai 2009

Sitt lítið af hverju af silungaslóðum

Það berast fréttir heán að og þaðan. Víðar byrjuð veiði en í Þingvallavatni, en það mun að mestu vera vatnasilungsveiðin sem verður í sviðsljósinu þangað til að laxinn fer að ganga því birtingurinn er að miklu leyti farinn úr ánum.

 
2012 þingv3

Enn eitt tröllið úr Þingvallavatni á þessu vori

Menn eru greinilega að lenda í ævintýrum í Þingvallavatni þó að mesta veislan sé eflaust framundan. Við fengum frásögn og myndir af skemmitlegri uppákomu, 16 punda urriði takk fyrir...

 
2012 urriðatröll

Einn sá flottasti úr Þingvallavatni í vor!

Eins og fram hefur komið, hafa menn verið að setja í væna urriða í Þingvallavatni að undanförnu og má fastlega búast við að veiðin bara glæðist á næstu dögum og vikum. Hér er einn af þeim flottari í vor.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Um útboðið í Gljúfurá í Hún

Búið er að opna tilboðin í Gljúfurá í Húnavatnssýslu sem fór heldur óvænt í útboð á dögunum. Okkur er tjáð að Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sé með hæsta tilboð og vildi hann ekki neita því aðspurður.

 
Lax úr Miðfjarðará

Sölufyrirtækin með stórafmæli

Veiðileyfasalinn Lax-á, sem Árni Baldursson veitir forstöðu, á 25 ára afmæli um þessar mundir og fyrir skemmstu átti einn keppinautanna, Strengir, fyrirtæki Þrastar Elliðasonar, 20 ára afmæli á fimmtugsafmælisdegi eigandans.

 
Ellidaa-010507-04

Urriðinn sólginn í nýlunduna

Urriðinn er farinn að veiðast í Þingvallavatni eins og fram hefur komið og nokkrir ferlegir boltar eru meðal þeirra sem náðst hafa á land. Margir eru að veiða á flugu, aðrir á spón og beitu. En svo er líka þetta nýja....

 
2012 risaurriði

„Hvers vegna alltaf ég?“

Þeir sem fygljast með enska boltanum þekkja eflaust áletrunina á bolnum hjá hinum undarlega Mario Balotelli, Why always me? Veiðimaður að nafni Nils Folmer Jörgensen gæti spurt sig sömu spurningar, nema af öðru tilefni.

 
urriði úr Þingvallavatni

Vantar ekki tröllin í Þingvallavatni

Menn eru farnir að róta upp risa urriðum í Þingvallavatni þó að hefðbundinn veiðitími sé ekki hafinn. Við höfum heyrt um afla frá „einkajörðum“ og afla þar sem staðurinn er ekki gefinn upp. Rauði þráðurinn í öllum þessum fréttum er.....

 
Fossinn í Korpu

Vilja breyta fossinum í Korpu

Leigutakar Korpu, eða Úlfarsár eins og hún heitir líka, íhuga nú að gera breytingar á Fossinum, einum albesta veiðistað árinnar, en hann er rétt ofan við sjávarmál.

 
Sæsteinssuga föst á laxi í Ytri Rangá

Eitt og annað um sugur

Á ársfundi VMSt í síðustu viku var vikið að athugunum sem gerðar hafa verið á sæsteinssugu á Íslandi. Þær eru af Evrópskum uppruna og merki um hrygningu hafa ekki fundist.

 
Halalýs

Vont ástand norskra laxveiðiáa

Fram kom á ársfundi VMSt í gær, að 124 af 400 laxveiðiám Noregs eru lokaðar og þjóðarbúið þar er að verða af andvirði 6,5 milljarða íslenskra króna. Rætur má rekja beint og óbeint til laxeldis.

 
02

„Tilbúið í almenna notkun“

Aðeins hefur verið fiktað við skráningu veiðibóka dagsdaglega á internetinu og nú er svo komið í þróun þeirrar tækni ef svo má að orði komast, að það er ekkert að vanbúnaði að setja slíkt í gang á fullu.

 
2012 Lónbuinn 3

Lónbúinn frumsýndur

Ný kvikmynd um lífshlaup laxins í íslenskri náttúru verður frumsýn í Bíó Paradís á komandi föstudagskvöldi. Myndin ber heitið Lónbúinn....

 
27 - Flottur!

Forvitnilegur ársfundur VMSt

Óhætt er að mæla með hinum árvissa ársfundi Veiðimálastofnunar, en hann fer fram að þessu sinni á morgun, fimmtudaginn 26.apríl í Bíósal Hótel Loftleiða (Natura víst í dag). Það kennir margra grasa að venju.

 
2012 4 Vatnamót

Veiðiþorstinn horfinn í bili

Helstu veiðitölur þessa vors koma frá Litluá og Tungulæk, en veiði var líka góð framan í Vatnamótum. Eitthvað hefur þó dregið úr þar, mögulega vegna aukins kulda þar um slóðir.

 
2012 sinueldar við Grímsá

All svakalegt sinuský

Stefán Pétursson var ásamt félögum sínum við veiðar á sjóbirtingssvæðinu í Grímsá síðast liðinn laugardag og varð þeim að vonum hverft við þegar tröllaukið ský gaus upp og færðist óðfluga nær!

 
2012 Haukubændur

Skrifað undir í Haukadal

Um helgina skrifuðu landeiegdnur við Haukadalsá undir nýjan samning við nýja leigutaka um leigu á ánni frá 2013 til 2016, að áður undangengnu útboði. Svisslendingurinn Doppler var áður með ána á leigu.

 
2012 eldvatn

Himnaríki að vori

Sagt er að hver árstíð hafi sína fegurð og mörgum finnst vorið bera þar af. Hvað sem því líður, þá er hér dæmi um hvers vegna margir eru þeirrar skoðunar....

 
2012 litlaá

Svaka tölur og fiskar úr Litluá

Við höfum af og til heyrt rosalegar tölur úr Litluá í Kelduhverfi í vor, en fengum núna loksins eitthvað staðfest til að moða úr. Og það sem fékkst staðfest, undirstrikaði að fregnir af svæðinu voru síður en svo ýktar.

 
IMG_9601ow

Stórfiskar úr Galtalæk

Menn eru víða að kroppa upp fisk og við heyrðum t.d. í þeim sem byrjuðu í Eldvatni í fyrradag og höfðu fengið þrjá stóra fiska fyrir kvöldið og misst nokkra. En svo er þetta með Galtalæk!

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Elliðavatnið opnað

Veiði hófst í Elliðavatni í dag og var dálítið líf og fisk að hafa, sérstaklega uppúr miðjum morgni eftir því sem við komumst næst.

 
2011 nýja veiðihúsið

Fossgerði, nýtt veiðihús við Selá

Nú er um það bil að ljúka byggingu nýs veiðihús við Selá í Vopnafirði og er það eitthvert albesta veiðihús landsins, þvert ofan í kreppkjaftæðið. 

 
Thingvellir-010507-05

Fluguveiði í Þingvallavatni

Þingvallavatnið er góður vettvangur byrjenda í fluguveiði, enda er nú í boði námskeið undiryfirskriftinni Fluguveiði í Þingvallavatni.

 
2012 eldvatn Vivvi við Hundavað

Að koma vel haldinn undan vetri

Við höfum verið með óvenju tíðar fréttir af Eldvatni í Meðallandi að þessu sinni.  Hér er aðeins meira, kannski er þetta þó kannski hvað skemmtilegast að skoða m.t.t. hversu stórkostlega vel haldinn þessi vorfiskur er!

 
Vatnamót

Fréttir af birtingum

Enn sytra inn fréttir af sjóbirtingum og má af þeim ráða að enn sé fiskur í ánum, a.m.k. í Tungulæk, Steinsmýrarvötnum, Eldvatni og Vatnamótum.

 
Elliðaá

Stangaveiðifélagið „komið heim“

Það var stór dagur hjá SVFR í dag, en skrifstofa félagsins var flutt í nýtt húsnæði í húsakynnum OR í Elliðaárdal. Hæðin í Austurveri verður seld. Formaðurinn segir að SVFR sé nú „komið heim“.

 
2012 4

Gerðu það gott í Kvíslinni

Það gleymist stundum að það eru sjóbirtingsár sem opna á vorin fyrir norðan, ekki aðeins á Suðurlandi. Ein þeirra er Húseyjarkvísl. Við heyrðum í Jónasi Elvari Halldórssyni sem var þar fyrir skemmstu með félögum sínum.

 
Lilja Ola með 9 punda birting 2012

Líf og fjör í Eldvatni

Eins og við gátum um og reyndar leiðréttum, þá hefur veiði verið prýðileg í Eldvatni í vor. Það var aðeins í opnun að menn náðu ekki takti við ána, en síðan hefur gefið vel. Við nældum í nokkrar nýjar myndir...

 
13_MAI_Ellidavatn

Guttormur kynnir Elliðavatn

Eftir nákvæmlega viku, fimmtudaginn 19.apríl, sem er Sumardagurinn fyrsti, opnar Elliðavatn. Þeir sem vilja kynnast vatninu nánar fá nú magnað tækifæri til þess.

 
Eldvatn-Hundavað 2011

„Stórt“ holl í Eldvatni

Í síðustu frétt okkar, sem var samantekt af ýmsum svæðum, gætti ónákvæmni um gang mála í Eldvatni. Þar hefur veiðin verið betri en okkur hafði skilist......

 
Tungu20103

Allur gangur á því

Það hefur verið fremur rólegt að frétta af veiðislóðum það sem af er vori. Sjóbirtingsveiðin víðast „í lagi“, en ekkert allt of mikið að gerast þar fyrir utan. Rennum yfir eitt og annað.

 
2012 - 2

Af sjóbirtingum í vor

Sjóbirtingsvertíðin hefur byrjað með miklum ágætum þó að smá skugga beri á þar sem Varmá hefur hikstað. En „kanónurnar“ fyrir austan, hafa gefið prýðilega.

 
Veiðimaður við Varmá 1.mai 2009

Fiskur genginn úr Varmá?

Vorveiði á sjóbirtingi hefur byrjað með nokkuð hefðbundnu sniði. Ekki þó í Varmá, sem var afar dauf í opnun og talað var um að fiskur væri þar genginn til hafs.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Gljúfurá í Hún í útboð

Gljúfurá í Húnavtnssýslu hefur verið boðin út frá og með árinu 2013 til og með 2016. Hreggnasi hefur leigt ána síðustu árin.

 
Hrutafjardara-sept-2009-08

Strengir áfram með Hrútu

Það virðist ekki síður vera að gerast að leigutakar endurnýi leigusamninga en að ár fari í útboð. Strengir voru t.d. að framlengja Hrútuna til þriggja ára.

 
2012 Tungulækur

Tíðindi héðan og þaðan

Það var rólegt í Minnivallalæk í gær, þegar áin var opnuð, en þrátt fyrir að veður hafi versnað, þá jókst veiðin mjög í Tungufljóti er á hollið leið.

 
2012 opnun Geirlandsár

Vetur skollinn aftur á fyrir austan

Yfirleitt kemur sumar eftir vor, en ef það er vorlegt óvenjusnemma getur það alveg eins gerst að veturinn minnir á að hann er alls ekki búinn að syngja sitt síðasta.

 

Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica