Heiðarvatn í Heiðardal ofan Mýrdals hefur lengi verið þekkt fyrir stóra staðbundna og sjógengna urriða.
Gærdagurinn var sá besti í Vatnsá í Heiðardal í allt sumar og áin hefur gefið yfir 300 laxa. Besti tíminn er eftir, þannig að sýnt þykir að vertíðin verði frábær...
Sjóbirtignsveiði fer oft fyrr af stað í Eldvatni heldur en í öðrum bergvatnsám í Vestur Skaft. Þar hafa komið góð skot að undanförnu.
Haffjarðará er ein af aflahæstu ám sumarsins og þar er frábært veiðisumar í fullum gangi, en lýsingar á vatnsbúskap Snæfellsnes eru þó vægast sagt hryllilegar....
Menn spyrja sig oft og iðulega í byrjun veiðiferðar: Hvað skyldi hann taka? Stundum er það hefðbundið og stundum ekki og stundum tekur hann ekki neitt!
Víðidalsá er komin með um eða yfir 1.000 laxa og hefur veiði verið góð að undanförnu, en það er stórlaxastatusinn sem vekur athygli.
Það er enginn endir að því er virðist á stórlaxasögum úr Laxá í Aðaldal. Áin er full af 20plús þungum löxum......
Það eru stórlaxaveislur víðar en í Aðaldalnum þó svo að tölur yfir slíka laxi jafnist ekki á við Drottninguna. Veiðimenn í Svalbarðsá og Norðurá hafa t.d. landað 20 pundurum nú í lok vikunnar.
Eystri Rangá er komin í efsta sætið og það nokkuð afgerandi. Þriðja er Þverá/Kjarrá og ljóst að þar í pípunum afburða sumar! Síðan má nefna að á topp tíu lista eru Blanda, Haffjarðará og Grímsá komnar yfir heildarveiði sína 2009.
Veiði hefur verið góð í Minnivallalæk það sem af er og heildartalan farin að nálgast 300.
Veiði hefur glæðst í Aðaldalnum og skipti sköpum að það gerði góða rigningu á dögunum. Slý tók upp og hreyfing komst á laxinn.
Það er sannarlega allt gott og blessað að það skuli hafa orðið aukning í ár á stórlaxi. En þessir 90 til 100 cm laxar hérlendis lyfta ekki augabrúnum veiðimanna í Rússlandi.
Miðfjarðará er enn í uppsveiflunni sem gaf henni metveiðina í fyrra. Þetta er ekki alveg eisn magnað og þá, en veiðin er samt frábær miðað við slök skilyrði, líkt og úi fyrra. Nýlega kom 20 pundari úr ánni
Laxveiðisumarið hefur verið afar athyglisvert. Byrjaði með látum og mörgum stórum löxum, síðan hefur lengi vel stefnt í metveiði þrátt fyrir vatnsleysi og skort á smálaxi í heilu landshlutunum. En nýtt met er þó ekki í sjónmáli í bili.
Gunnar Karl Gíslason matreiðslumeistari á veitingastaðnum Dill var við veiðar í Fljótaá nú í vikunni. Hann krækti í 84 cm hrygnu, sem var stærsti lax sem hann hefur veitt.
Það er ekki svo lítið búið að tala um stórlaxana í Laxá í Aðaldal í sumar. En að sami veiðimaður veiði tvo yfir 20 pund á sama klukkutímanum er samt með ólíkindum.
Víða að berast þau tíðindi, einkum að norðan, að veiðin samanstendur að stórum hluta af stórum laxi...það er lítið af smálaxi, en samt eru tölur góðar.
Eysteinn Orri Gunnarsson og Guðmundur Stefán Guðmundsson lentu í spennandi veiðiskap í Norðlingafljóti á dögunum þegar þeir veiddu ána í rénum eftir úrkomuskot.
Félagarnir í klúbbnum „Ekki varir“ stóðu alls ekki undir nafni þegar þeir fóru í Affallið í vikunni, heldur ekki þegar þeir fóru á sama svæðið fyrr í sumar.....
Veiði byrjaði vel í Svalbarðsá í byrjun sumars og hefur gengið upp og ofan, en í heild vel það sem af er. Í gær veiddist verulega fallegur lax í ánni.
Norðurá tók aðeins við sér eftir smá vætu og tveggja daga holl náði 53 löxum. En það taldist til tíðinda að 20 pundari kom á land úr ánni, en það er ljón sjaldgæft til áratuga.
Þrátt fyrir að veiði hafi stóraukist í Breiðdalsá seinni árin og hún sé orðin með nafntogaðri laxveiðiám landsins, þá hefur aldrei tekist að rjúfa þúsund laxa múrinn.
Töfrar vætunnar í kjölfar langra þurrka og vatnsleysis verða aldrei ofmetnir, það sannaðist á bökkum Laxár í Dölum í vikunni þegar síðasta fluguveiðihollið lauk þar veiðum....
Eins og venjulega þá eru fyrstu sjóbirtingarnir farnir að láta á sér kræla í ám í Vestur Skaftafellssýslu. Má nefna Geirlandsá, Tungulæk og Steinsmýrarvötn.
Stærsti lax sumarsins(a.m.k. sá lengsti) veiddist í Laxá í Aðaldal á Nessvæðunum í kvöld. Var það magnaður 109 cm hængur.
Þrátt fyrir að það stefni í eitthvert mesta laxveiðisumar fyrr og síðar þá virðist víða vanta nokkuð upp á að smálaxagöngur séu virkilega sterkar. Á það sérstaklega við yfir víða fyrir norðan...
Óhætt er að segja að demburnar hér og þar að undanförnu hafi hleypt lífi í veiðiskapinn. Ein á sem var orðin afar dapurleg vegna vatnsleysis var Hrútafjarðará, en hún hefur tekið við sér..
Rigningargusurnar hér og þar að undanförnu hafa vissulega hleypt lífi í veiðiskapinn þar sem þeirra hefur notið við.
VoV var á bökkum urriðasvæðanna í Laxá fyrir norðan í vikunni og tókum við þar púlsinn á veiðiskapnum og virðist sumarið hafa verið nokkuð gott þar um slóðir....
Það er gaman að segja frá því að víða hefur sjóbleikjuveiði verið lífleg. Hvort að lokatölur verða góðar verður þó að koma í ljós. En núna síðast heyrðum við skemmtilega veiðilýsingu frá Norðurá í Skagafirði.
Það gat nú verið að engin önnur en Eyjafjarðará hafi toppað risasjóbleikjuna sem Vigfús Orrason veiddi í Hafralónsá á dögunum. Sú bleikja var 70 cm og 33 cm í ummál, en fyrir skemmstu veiddust á sama deginum tvær 72 cm bleikjur í Eyjafjarðará.
Við höfum heyrt af all nokkrum verulega stórum sjóbleikjum í sumar, aðallega úr Hrútafjarðará, en hér er komin móðir allra boltableikja og er okkur til efs að stærri sjóbleikja hafi veiðst það sem af er vertíð.
Það eru all hrikalegar tölurnar yfir stórlaxa sem við höfum heyrt frá Laxá í Aðaldal og ljóst að engin hérlend á hefur tærnar þar sem hún hefur hælana í þeim efnum.
Oft er talað um að menn þekki einstaklinga úr hinum ýmsu stofnum, stuttir og sverir, langir og mjóir, en seiðasleppingar síðustu áratugi hafi ruglað öllu saman. Enn má þó sjá þetta í náttúrunni.
100 cm múrinn brotinn í Miðfjarðará í gær með látum þegar Björn Sveinbjörnsson landaði 108 cm laxi úr Austurá. Meðfylgjandi myndir af tröllinu sendi Rafn okkur, okkur og lesendum til mikillar ánægju.
Það er eitt og annað sem veiðist á stöng en margur myndi ekki reikna með því að minkur væri eitt af því sem á stöng veiðist. En það er nú einmitt þannig farið og ný dæmi eru til um það.
Þverá í Fljótshlíð hefur verið að gefa góð skot og segja má að nú sé farinn í hönd besti veiðitíminn í ánni. Við fengum fyrir skemmstu skeyti frá umsjónarmanni árinnar, Einari Lúðvíkssyni og hann sagði okkur eftirfarandi...
Eftir metlaxveiði í Geirlandsá í fyrra var búist við meiru af því sama í ár, en þetta hefur farið hægar af stað núna. Samt hefur laxveiðin verið að glæðast að undaförnu samkvæmt vefsíðu SVFK.
Jöklusvæðið hefur heldur betur verið að taka við sér að undaförnu og smátt
og smátt hefur það verið að stympla sig inn sem laxveiðiperla í hæsta
gæðaflokki. Við heyrðum í Mokveiðifélaginu sem hefur tekið sér daga þar á
árlegum basís.
Við greindum frá góðri veiði í Flekkudalsá fyrir skemmstu, vitnuðum þar í Einar Fal Ingólfsson. Hjálmar Árnason bætti um betur í skeyti til okkar, en ljóst era ð laxinn er ólíkindatól og á það til að vaða upp í ár þó að það vatni varla yfir þá!
Það hefur flogið fjöllum hærra að 34 punda tröll hafi veiðst í net hjá netabændum í Laugardælum. Ekki virðast þeir kannast við það og spurning hvernig svona kvittur kemst á kreik?
Skógá er loksins farina ð gefa laxa og búið er að opna Vatnsá með flugeldasýningu. Það eru því góðar fréttir af þeim hluta Suðurlandsins, en við fengum skeyti í gær frá leigutakanum og umsjónarmanninum Ásgeiri Ásmundssyni.
Blanda er enn efst og Þverá/Kjarrá skammt á eftir, en það eru Rangárnar sem eru á mestu siglingunni eins og þeirra var von og visa á þessum tíma sumars.
Það er ekki alls staðar vatnsleysi til að dreifa. Sumar ár hafa betra forðabúr en aðrar og svo eru sumar heppnari með staðsetningar tilfallandi regnskúra en aðrar. Það vantar t.d. ekki vatn í Norðlingafljótið….og ekki lax heldur!
Ef tekið er mið af Vatnsdalsá, þá dregur nokkuð úr laxveiðinni þar. Fyrir nokkru voru Vatnsdælingar enn á undan sjálfum sér miðað við sama tíma í fyrra, en hafa nú náð í skottið á sér. Talið er að vöntun á smálaxi sé skýringin.
Þær eru margar veiðiperlurnar hér á landi og ein þeirra er Hofsá í Vesturdal í Skagafirði ásamt þveránni Runukvísl, en þetta svæði er á framfæri Stangaveiðifélags Akureyrar.
Nýlega var stórstreymt og það gekk talsvert af laxi. Við heyrðum af ýmsum af “smærri” ánum núna um helgina og þrátt fyrir að vatnsleysi hamli þeim ekki síður en stærri ám, þá eru menn víða að gera góða hluti.
VoV endurnýjað gömul kynni við 3.svæði Stóru Laxár nú um helgina, nánar tiltekið seinni partinn í gær og svo í morgun.
Mögnuð veiði hefur verið í Veiðivötnum í sumar og hver metveiðihelgin rekur þar aðra samkvæmt vefnum http://www.veidivotn.is/. Ljóst virðist að þarna verður metveiðisumar.
Auðvitað er laxinn kominn upp að ströndinni og einhverjir eru byrjaðir að kíkja í árnar eins og fréttin um hrygnuna í Bíldsfelli staðfestir. Fyrstu árnar opna þann 5.júní og það er snarhlýnandi veður í kortunum. Hér kemur lýsing sjónarvotts....
Það er oft spáð í hvað sjóbirtingur hangi lengi í fersku vatni og yfirleitt er talið að þegar komið er fram í mai þá sé hann farinn. Rangt. Hrygningarfiskurinn jú, en allur geldfiskurinn ekki.
Ekki þurfti að bíða lengi eftir fyrsta stangarveidda laxi sumarsins, en í morgun veiddist sá ágæti fiskur í Bíldsfelli í Soginu. Það var Smári Þorvaldsson sem veiddi laxinn, en hann var á bleikjuveiðum þegar hann sá hreyfingu sem var augljóslega ekki bleikja.
Nú er fimtudagurinn 18.5 og má með nokkurri vissu segja að fyrstu laxarnir séu gengnir í Hvítá í Borgarfirði. Næsti sunnudagur er 21.5 og þann dag sáust fyrstu laxarnir í Laxá í Kjós í fyrra.
Það hefur verið afskaplega lítið að frétta af bökkum vatnanna síðustu daga enda kannski ekki að undra eins og veðurfarið hefur verið. En fram undir síðustu helgi voru þó að berast fréttir af skotum hér og þar, þannig að vötnin voru byrjuð að taka við sér.
Stangaveiðifélag Akureyrar bryddar upp á skemmtilegri nýjung í veiðileyfasölu þessa daganna. Hægt er að kaupa sérstakt Laxárkort með inneign upp á átta daga á þekktum urriðasvæðum.
Veiðiportið á Granda hefur lengi streðað við að halda verði niðri á boðlegum vörum. Nú hefur fyrirtækið opnað vefsíðu til að bæta þjónustuna.
Hreggnasi hefur gengið frá endurnýjun á leigusamningi fyrir Laxá í Kjós til tveggja ára og þar með er á sama deginum tekið fyrir spennandi mögulegt útboð! Áður kom nánast sama frétt frá Norðurá. Jón Þór Júlíusson staðfesti að samkomulag hefði náðst, en baðst undan að tala um krónur og aura.
Veiðifélag Norðurár og SVFR munu hafa náð samkomulagi um áframhaldandi leigu SVFR á ánni um komandi ár. Þar með verður ekkert af útboði því sem margur áleit að gæti orðið hið forvitnilegasta, enda SVFR verið lengur með Norðurá en gengur og gerist.
Veðurfar hefur verið með kaldara móti í vor þrátt fyrir fallega daga, en samt aflast vel víða, einkum þó á sjóbirtingsslóðum og í Þingvalla- og Elliðavatni. Nú er hret í kortunum....
Haft er fyrir satt að hvað eftir annað séu að koma lífleg urriðaskot í Þingvallavatni. Fréttir berast af stórum, stórum urriðum sem eru að slaga upp í 20 punda þeir stærstu. En það berast einnig fregnir af óþverraskap.
Skoski strigakjafturinn og sjónvarpskokkurinn heimsfrægi Gordon Ramsey, var staddur hér á landi um helgina og veiddi m.a. væna sjóbirtinga í Tungulæk í Landbroti. Hér eru skemmtilegar myndir af þeirri uppákomu...
VoV getur staðfest að enn er góð veiðivon á sjóbirtingsslóðum í Skaftárhreppi. Það eru hins vegar fáir að veiða þessa daganna, kannski að menn hafi ekki trú á birtingi í mai?
Það berast fréttir heán að og þaðan. Víðar byrjuð veiði en í Þingvallavatni, en það mun að mestu vera vatnasilungsveiðin sem verður í sviðsljósinu þangað til að laxinn fer að ganga því birtingurinn er að miklu leyti farinn úr ánum.
Menn eru greinilega að lenda í ævintýrum í Þingvallavatni þó að mesta veislan sé eflaust framundan. Við fengum frásögn og myndir af skemmitlegri uppákomu, 16 punda urriði takk fyrir...
Eins og fram hefur komið, hafa menn verið að setja í væna urriða í Þingvallavatni að undanförnu og má fastlega búast við að veiðin bara glæðist á næstu dögum og vikum. Hér er einn af þeim flottari í vor.
Búið er að opna tilboðin í Gljúfurá í Húnavatnssýslu sem fór heldur óvænt í útboð á dögunum. Okkur er tjáð að Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sé með hæsta tilboð og vildi hann ekki neita því aðspurður.
Veiðileyfasalinn Lax-á, sem Árni Baldursson veitir forstöðu, á 25 ára afmæli um þessar mundir og fyrir skemmstu átti einn keppinautanna, Strengir, fyrirtæki Þrastar Elliðasonar, 20 ára afmæli á fimmtugsafmælisdegi eigandans.
Urriðinn er farinn að veiðast í Þingvallavatni eins og fram hefur komið og nokkrir ferlegir boltar eru meðal þeirra sem náðst hafa á land. Margir eru að veiða á flugu, aðrir á spón og beitu. En svo er líka þetta nýja....
Þeir sem fygljast með enska boltanum þekkja eflaust áletrunina á bolnum hjá hinum undarlega Mario Balotelli, Why always me? Veiðimaður að nafni Nils Folmer Jörgensen gæti spurt sig sömu spurningar, nema af öðru tilefni.
Menn eru farnir að róta upp risa urriðum í Þingvallavatni þó að hefðbundinn veiðitími sé ekki hafinn. Við höfum heyrt um afla frá „einkajörðum“ og afla þar sem staðurinn er ekki gefinn upp. Rauði þráðurinn í öllum þessum fréttum er.....
Leigutakar Korpu, eða Úlfarsár eins og hún heitir líka, íhuga nú að gera breytingar á Fossinum, einum albesta veiðistað árinnar, en hann er rétt ofan við sjávarmál.
Á ársfundi VMSt í síðustu viku var vikið að athugunum sem gerðar hafa verið á sæsteinssugu á Íslandi. Þær eru af Evrópskum uppruna og merki um hrygningu hafa ekki fundist.
Fram kom á ársfundi VMSt í gær, að 124 af 400 laxveiðiám Noregs eru lokaðar og þjóðarbúið þar er að verða af andvirði 6,5 milljarða íslenskra króna. Rætur má rekja beint og óbeint til laxeldis.
Aðeins hefur verið fiktað við skráningu veiðibóka dagsdaglega á internetinu og nú er svo komið í þróun þeirrar tækni ef svo má að orði komast, að það er ekkert að vanbúnaði að setja slíkt í gang á fullu.
Ný kvikmynd um lífshlaup laxins í íslenskri náttúru verður frumsýn í Bíó Paradís á komandi föstudagskvöldi. Myndin ber heitið Lónbúinn....
Óhætt er að mæla með hinum árvissa ársfundi Veiðimálastofnunar, en hann fer fram að þessu sinni á morgun, fimmtudaginn 26.apríl í Bíósal Hótel Loftleiða (Natura víst í dag). Það kennir margra grasa að venju.
Helstu veiðitölur þessa vors koma frá Litluá og Tungulæk, en veiði var líka góð framan í Vatnamótum. Eitthvað hefur þó dregið úr þar, mögulega vegna aukins kulda þar um slóðir.
Stefán Pétursson var ásamt félögum sínum við veiðar á sjóbirtingssvæðinu í Grímsá síðast liðinn laugardag og varð þeim að vonum hverft við þegar tröllaukið ský gaus upp og færðist óðfluga nær!
Um helgina skrifuðu landeiegdnur við Haukadalsá undir nýjan samning við nýja leigutaka um leigu á ánni frá 2013 til 2016, að áður undangengnu útboði. Svisslendingurinn Doppler var áður með ána á leigu.
Sagt er að hver árstíð hafi sína fegurð og mörgum finnst vorið bera þar af. Hvað sem því líður, þá er hér dæmi um hvers vegna margir eru þeirrar skoðunar....
Við höfum af og til heyrt rosalegar tölur úr Litluá í Kelduhverfi í vor, en fengum núna loksins eitthvað staðfest til að moða úr. Og það sem fékkst staðfest, undirstrikaði að fregnir af svæðinu voru síður en svo ýktar.
Menn eru víða að kroppa upp fisk og við heyrðum t.d. í þeim sem byrjuðu í Eldvatni í fyrradag og höfðu fengið þrjá stóra fiska fyrir kvöldið og misst nokkra. En svo er þetta með Galtalæk!
Veiði hófst í Elliðavatni í dag og var dálítið líf og fisk að hafa, sérstaklega uppúr miðjum morgni eftir því sem við komumst næst.
Nú er um það bil að ljúka byggingu nýs veiðihús við Selá í Vopnafirði og er það eitthvert albesta veiðihús landsins, þvert ofan í kreppkjaftæðið.
Þingvallavatnið er góður vettvangur byrjenda í fluguveiði, enda er nú í boði námskeið undiryfirskriftinni Fluguveiði í Þingvallavatni.
Við höfum verið með óvenju tíðar fréttir af Eldvatni í Meðallandi að þessu sinni. Hér er aðeins meira, kannski er þetta þó kannski hvað skemmtilegast að skoða m.t.t. hversu stórkostlega vel haldinn þessi vorfiskur er!
Enn sytra inn fréttir af sjóbirtingum og má af þeim ráða að enn sé fiskur í ánum, a.m.k. í Tungulæk, Steinsmýrarvötnum, Eldvatni og Vatnamótum.
Það var stór dagur hjá SVFR í dag, en skrifstofa félagsins var flutt í nýtt húsnæði í húsakynnum OR í Elliðaárdal. Hæðin í Austurveri verður seld. Formaðurinn segir að SVFR sé nú „komið heim“.
Það gleymist stundum að það eru sjóbirtingsár sem opna á vorin fyrir norðan, ekki aðeins á Suðurlandi. Ein þeirra er Húseyjarkvísl. Við heyrðum í Jónasi Elvari Halldórssyni sem var þar fyrir skemmstu með félögum sínum.
Eins og við gátum um og reyndar leiðréttum, þá hefur veiði verið prýðileg í Eldvatni í vor. Það var aðeins í opnun að menn náðu ekki takti við ána, en síðan hefur gefið vel. Við nældum í nokkrar nýjar myndir...
Eftir nákvæmlega viku, fimmtudaginn 19.apríl, sem er Sumardagurinn fyrsti, opnar Elliðavatn. Þeir sem vilja kynnast vatninu nánar fá nú magnað tækifæri til þess.
Í síðustu frétt okkar, sem var samantekt af ýmsum svæðum, gætti ónákvæmni um gang mála í Eldvatni. Þar hefur veiðin verið betri en okkur hafði skilist......
Það hefur verið fremur rólegt að frétta af veiðislóðum það sem af er vori. Sjóbirtingsveiðin víðast „í lagi“, en ekkert allt of mikið að gerast þar fyrir utan. Rennum yfir eitt og annað.
Sjóbirtingsvertíðin hefur byrjað með miklum ágætum þó að smá skugga beri á þar sem Varmá hefur hikstað. En „kanónurnar“ fyrir austan, hafa gefið prýðilega.
Vorveiði á sjóbirtingi hefur byrjað með nokkuð hefðbundnu sniði. Ekki þó í Varmá, sem var afar dauf í opnun og talað var um að fiskur væri þar genginn til hafs.
Gljúfurá í Húnavtnssýslu hefur verið boðin út frá og með árinu 2013 til og með 2016. Hreggnasi hefur leigt ána síðustu árin.
Það virðist ekki síður vera að gerast að leigutakar endurnýi leigusamninga en að ár fari í útboð. Strengir voru t.d. að framlengja Hrútuna til þriggja ára.
Það var rólegt í Minnivallalæk í gær, þegar áin var opnuð, en þrátt fyrir að veður hafi versnað, þá jókst veiðin mjög í Tungufljóti er á hollið leið.
Yfirleitt kemur sumar eftir vor, en ef það er vorlegt óvenjusnemma getur það alveg eins gerst að veturinn minnir á að hann er alls ekki búinn að syngja sitt síðasta.