votnogveidi_Fors_2009-04

eru þau að fáann

klakveiði 1 2010

Stórskemmtilegar klakveiðar - 30.6.2010

Við höfum nú fengið lofaðar myndir frá klakveiðiskap í Eystri Rangá, en andstætt flestum eða öllum öðrum ám þá fer hluti af klakveiði Eystri Rangár fram á vorin...

 
Rafn með bolta 2010

Flottar stórlaxatölur úr Miðfirði - 30.6.2010

Góður slatti af stórlaxi í ánum það sem af er og í Miðfjarðará má segja að hafi verið einstakt hlutfall stórlaxa.

 
9 punda bleikja 2010

Mögnuð fyrsta vika í Veiðivötnum - 30.6.2010

Fyrsta vikan í Veiðivötnum var mjög góð, 6008 fiskar veiddust, sem er litlu minna en fyrstu vikuna í fyrra sem var metsumar...

 
Laxi landað í Ölfusá við Selfoss

Ölfusá opnar með stæl - 30.6.2010

Veiði hófst á dögunum í Ölfusá við Selfoss og í gærmorgun hafði veiðst meira í ánni en á sama tíma í fyrra, en þá var um bestu opnun að ræða sem lengi hafði sést. Við leituðum upplýsinga á vefsvæði SVFS…

 
Lax úr Eystri Rangá

Klakveiðimenn í stórræðum í Eystri Rangá - 29.6.2010

Að undanförnu hefur verið klakveiði í Eystri Rangá og klakveiðimennirnir hafa fundið fyrir fiski víða í ánni og aflað vel.

 
Frábær sjóbleikjuafli úr Vatnsdalsá

Líflegt á silungasvæði Vatnsdalsár - 29.6.2010

Ekki virðist hnignun bleikju eiga við alls staðr. Nú berast okkur fínar tölur úr Vatnsdalsá.

 
Klaus 20101

Betri mynd af tröllinu - 29.6.2010

Við erum nýbúnir að hafa frétt um 105 cm hængtröll sem Klaus Frimor veiddi á Vitaðsgjafa í Laxá í Aðaldal vikubyrjun, lax sem er trúlega sá stærsti úr íslenskri á það sem af er. Hér er betri mynd af skepnunni….

 
Fljota03

Tröll sleit sig laust við opnun Fljótaár - 29.6.2010

Fljótaá í Fljótum opnaði á laugardaginn þegar nýr rússneskur sendiherra á Íslandi, Andrey V. Tsyganov, kastaði flugu í fyrsta skiptið á ævinni í boði Orra Vigfússonar leigutaka árinnar. Eins og menn muna þá var stórglæsileg metveiði í ánni í fyrra. Og veiðin fór vel af stað.

 
11 punda urriði 2

11 punda urriði! - 29.6.2010

Við hnýttum því aftan í frétt hér fyrir skömmu, að 11 punda urriði hefði veiðst á Heiðarendaflúð í Laxá í Aðaldal. Hér er komin mynd af kvikindinu!

 
27 - Flottur!

Hundrað laxa hollin að detta inn - 29.6.2010

Hundrað laxa hollin í Borgarfirðinum eru að byrja að detta inn og eru fyrr á ferðinni en vant er....

 
Frimor 2010

Stærðin skiptir víst máli - 28.6.2010

Klaus Frimor landaði í gærkvöldi 105 cm hæng á Vitaðsgjafa á Nesveiðum Laxár í Aðaldal. Áin hefur gefið nokkra sannkallaða dreka það sem af er júní, en engan svona stóran!

 
Kjós

Fréttir úr ýmsum áttum - 27.6.2010

Við vorum að veiða í dag, förum ekki nánar út í það, þetta var frábær dagur, en síðan kíktum við á póstinn og það var slatti af nýjum fréttamolum. Kíkjum á þá….

 
2010 Korpa 233

Sex á fyrsta morgninum - 26.6.2010

Við greindum frá því í þremur línum eða svo á föstudaginn að tveir laxar hefðu veiðst fyrsta klukkutímann í Korpu.  Þegar upp var staðið var staðan mjög góð og í anda annarra frétta í vor…

 
Selá

Frábær byrjun í Selá - 25.6.2010

Selá í Vopnafirði var opnuð í morgun og er óhætt að segja að hún hafi byrjað með hvelli. 19 laxar veiddust á fjórar stangir og var mikið af laxi um alla á.

 
Gljúfur í Hafralónsá

Hafralónsá: Opnunin skilaði tuttugu - 25.6.2010

Hollið sem opnaði Hafralónsá endaði með tuttugu laxa sem er það besta þar í áraraðir, ef ekki það besta.

 
2010 Leirvogsá 5

Laxar á land úr Leirvogsá og Korpu - 25.6.2010

Veiði hófst í bæði Leirvogsá og Korpu í morgun og komu laxar strax á land. Vatnsleysi er þó til mikils trafala....

 
2010 Laxá í Kjós 1

Vatnslaust en ekki fisklaust - 25.6.2010

Það var nóg um að vera í morgun þegar þrjár kunnar laxveiðiár voru opnaðar, bar þar helst Laxá í Kjós, en einnig opnuðu Leirvogsá og Korpa. Og það var alls staðar lax.....

 
Þá var að losa úr honum, Ásgeir t.h., Óli

Flott í Víðidalsá og Ytri - 24.6.2010

Tvær af sterkustu laxveiðiám landsins opnuðu í dag, Víðidalsá og Ytri Rangá. Er óhætt að segja að ekki verði kvartað undan því sem þar gekk á og líkt og annars staðar, þá var nóg af laxi...

 
15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Hollið endaði með 76 laxa! - 24.6.2010

Hollið sem opnaði Grímsá lauk veiðum á hádegi í dag. Hvort að þetta er metholl eða ekki hefur ekki verið flett upp enn, en 76 laxar er alltjent með því albesta sem þekkist úr ánni....

 
2010 Langá 2

Litlar veiðisögur í stóru samhengi - 24.6.2010

Fréttir af frábærri byrjun á laxveiðinni í Langá hefur vakið verðskuldaða athygli, en það leynast alltaf litlar veiðisögur í svoleiðis samhengi, t.d. Maríulax 9 ára drengs….

 
Grímsá 2010

Samantektin: Metopnun í Langá og fleira skemmtilegt - 24.6.2010

Samantekt dagsins er fróðleg, það er svakalega fín veiði, en menn eru orðnir smeykir um vatnsbúskapinn. Það var metveiði í opnunarholli Langár…

 
David Thormar 2010

Been there – done it! - 24.6.2010

Líklega stærsti lax sumarsins til þessa veiddist í Laxá í Aðaldal í gærmorgun og það var furðulegt déja vu þar í gangi.....

 
Hafralonsa-11-09-2007

Sama sagan í Hafralónsá, frábær byrjun! - 23.6.2010

Það er það sama í gangi í Hafralónsá og annars staðar, fín veiði í opnun og laxinn að hrúgast inn. Fyrstu þrjár vaktirnar í ánni gáfu tíu laxa og nokkra missta við afar afslappaða sókn aðeins tveggja stanga af fjórum.

 
Miðfjarðará2010 - Agnes

Fyrsti morguninn í Miðfjarðará gaf sjö - 23.6.2010

Fyrsti morguninn í Miðfjarðará gaf sjö laxa og eru menn sáttir við það að sögn leigutakans Rafns Vals Alfreðssonar.

 
11 Þetta er alveg að koma....

Fyrstu laxarnir komnir úr Andakílsá - 23.6.2010

Fyrstu laxarnir veiddust í Andakílsá í gær, en veiði í ánni hófst þann 20.júní síðast liðinn. Menn urðu varir við fleiri laxa.

 
Gísli Ásgeirsson að veiðum

Magnað í Grímsá! - 22.6.2010

Bara eina stutta hérna, það vantar enn þá mynd, hún kemur síðar, en lokatalan úr Grímsá, á þessum opnunardegi er 42 laxar!

 
2010 Vatnsdalsá

Gott miðað við aðstæður - 22.6.2010

Vatnsdalsá var opnuð eftir hádegið í gær og það er allt fullt af laxi í veiðistöðunum fyrir neðan Flóðið. Aðstæður voru erfiðar, vatnshiti kominn ofan í allt að 20 stigum en samt eru komnir 7 laxar á land.

 
Fossinn í Straumfjarðará

Fullt af fiski í Straumfjarðará - 22.6.2010

Það er líka búið að opna Straumfjarðará og þar veiddust 7 laxar strax í byrjun með letilegri sókn. Þetta var um helgina, en fyrsta selda hollið byrjar á morgun.

 
Sigurjón Arnarson með 15 punda urriða úr Hraunvötnum

Góð veiði og stórir fiskar í Veiðivötnum - 22.6.2010

Veiði byrjaði á dögunum í Veiðivötnum og hefur farið vela f stað. Á meðan að við bíðum eftir tölum fyrstu vikunnar á vef Arnars Óskarsson, http://www.veidivotn.is/ þá heyrðum við í Sigurjóni Arnarssyni sem var meðal þeirra sem opnuðu. Og hann var hress!

 
Jón Þór með lax 2010

Klikkuð opnun í Grímsá - 22.6.2010

Þær verða æ magnaðri opnanirnar eftir því sem líður á júní. Grímsá opnaði í morgun og var þetta start það magnaðasta á þessu sumri til þessa. 28 laxar á land og helmingurinn tveggja ára lax!

 
Laxá í Aðaldal 2010

Samantekt dagsins er lífleg! - 21.6.2010

Þær opna býsna ört laxárnar okkar og við hæfi að vera með samantekt dagsins að kvöldi rétt á meðan mesti atgangurinn gengur yfir. Langá opnaði t.d. í morgun og með miklum stæl. Á morgun opna síðan Grímsá og Miðfjarðará og eflaust fleiri.

 
2010Húseyjarkvísl

Fyrstu laxarnir úr Húseyjarkvísl - 21.6.2010

Það stefnir í meira af því sama þegar Húseyjarkvísl verður opnuð þann 25.6 því laxinn er mættur og þeir fyrstu veiddir...

 
Gnarr2010

Glæsilegt yfirlit dagsins! - 20.6.2010

Yfirlit dagsins er ansi flott. 20 stykki úr Laxá í Leir og 16 úr Elliðaánum. Þá var líflegt bæði í Sogi og Stóru Laxá!

 
Miðfellsfljót

Frábær byrjun í Laxá í Leir. - 20.6.2010

Laxá í Leirársveit var með einhverja bestu opnun sem þar hefur verið í áraraðir. Veiði hófst þar í morgun og komu 14 laxar á land á fjórar stangir.

 
0019

Meðalþyngdin 21 pund! - 20.6.2010

Laxá í Aðaldal var opnuð í morgun. Laxinn tók illa en þó komu tveir á land. Meðalþyngd þeirra var 21 pund!

 
Skóflan á 20 punda hæng

22 pundari af Núpafossbrún! - 20.6.2010

Laxá í Aðaldal var opnuð formlega fyrir laxveiði í morgun. Það markverðasta til þessa var að 22 punda hængur veiddist á Núpafossbrún að austan.

 
Elliðárnar2010Jón Gnarr

Jón Gnarr opnaði Elliðárnar með stæl - 20.6.2010

Elliðaárnar voru opnaðar klukkan sjö í morgun og það var hinn nýi borgarstjóri Jón Gnarr sem steig fram á Fossbrúnina og renndi maðki ofan í pyttinn. Og laxinn lét ekki á sér standa.

 
Við Fnjóská

Frábær byrjun í Fnjóská! - 19.6.2010

Á heimasíðu Stangaveiðifélagsins Flúðir á Akureyri má sjá að opnun Fnjóskár var frábær. Veiði hófst eftir hádegi á Þjóðhátíðadaginn og veiddust sex boltalaxar. Í gærmorgun bættust síðan þrír við.

 
Aðgerð á Arnarvatnsheiði

Fer vel af stað á Heiðinni - 19.6.2010

Veiði er hafin á Arnarvatnsheiði bæði að norðan og sunnan og fregnir hafa borist um góða veiði þar efra.

 
Haffjarðará - veiðihúsið

Glæsileg byrjun í Haffjarðará - 18.6.2010

Eins og annars staðar, þá var byrjunin í Haffjarðará virkilega flott. Veiði hófst þar á seinni vaktinni í dag og var sex löxum landað og annað eins slapp. Lax um alla á!

 
Kjarrá 2010

Óhætt að segja að laxveðin fari frábærlega af stað - 18.6.2010

Veiðin hefur farið afar vela f stað í laxveiðiánum eins og komið hefur fram. Ekkert eða lítið lát virðist vera þar á.

 
11 Þetta er alveg að koma....

Flott byrjun í Brennu - 17.6.2010

Við höfum greint frá því að veiðin hafi byrjað óvenjulega vel í Straumunum í Hvítá. Sömu sögu er að segja um Brennu í Hvítá, þar sem Þverá skilar sér til móðurárinnar.

 
Flóðið 2010

Hrikalegar bleikjur úr Flóðinu - 16.6.2010

Fitjaflóðið í Grenlæk er einkum frægt fyrir sjóbirtingsveiði og eru sérstaklega vorveiðarnar þekktar að magnveiði. Færri vita þó að það er hægt að gera fína bleikjuveiði í Flóðinu og þegar menn heyra að stærðin skipti ekki máli ættu þeir að endurskoða það við skoðun meðfylgjandi mynda.

 
15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Fyrsti laxinn úr Laxá í Aðaldal - 16.6.2010

Fyrsti laxinn hefur veiðst í Laxá í Aðaldal þó svo að áin verði ekki formlega opnuð fyrir laxveiði fyrr en á laugardaginn.

 
Þverá 2010

Tóku tíu í Kjarrá - 16.6.2010

Við náðum loks sambandi við Kjarrá, klukkan um eitt eftir miðnætti, Haraldur Eiríksson hjá SVFR er þar í opnunarhollinu og sagði hann okkur að tíu hefði verið landað á fyrstu vaktinni.

 
Sá fyrsti úr Þverá 2010

Fín byrjun í Þverá/Kjarrá - 15.6.2010

Ekki verður kvartað undan opnun Þverár og Kjarrár síðdegis í dag og í kvöld. Að vísu náðum við ekki tölunni úr Kjarrá en höfðum spurnir af afla. Þverá gaf hins vegar 6 laxa.

 
vígalegur hængur

Uppsveiflan kemur ekki á óvart - 14.6.2010

Það hefur verið alveg mögnuð veiði á urriðasvæðunum í Mývatnssveit og Laxárdal það sem af er, sérstaklega þó í Mývó.

 
19 Bjarni reynir til hins ýtrasta, en það er ekkert líf.

Rigningin glæddi göngurnar - 12.6.2010

Það er meiri laxgengd í Norðurá heldur en mælst hefur síðan að stiginn með teljaranum var settur í Laxfoss árið 2002.

 
09 Á meðan vaða aðrir stjórnarmenn yfir á Eyri.

Grenjandi rigning við Norðurá - 10.6.2010

Á hádegi voru komnir 23 laxar á land úr Norðurá og allt stefndi til mikilla bóta, enda hafði verið „grenjandi rigning“ þar....

 
Urriði í Litluá 2010

Litlaá í fínum gír - 10.6.2010

Prýðisgóð veiði hefur verið í Litluá í Keldhverfi það sem af er. Frekar fáir eru að veiða núna, menn virðast ekki álíta þetta góðan tíma í ánni, en raunin er að mikið er af stórum staðbundnum urriða í ánni og þetta er einmitt fínn tími fyrir hann.

 
Stefán sleppir fallegum Blöndulaxi

42 úr Blöndu – 8 úr Norðurá - 7.6.2010

Hollið í Blöndu vippaði 42 löxum á land sem er með ólíkindum glæsilegt. Norðurá endaði með 8 laxa, þar af var stjórnin með 7 á aðalsvæðinu.

 
Adam Lirion með urriða úr Elliðavatni

Vötnin að opna eitt af öðru - 7.6.2010

Allra besti tíminn í vötnunum er í flestum tilvikum að renna í hlað. Veiði í byggð er hafin um allt og til fjalla opna nú svæðin hvert af öðru.

 
Blanda2010

Róaðist seinni partinn í dag - 6.6.2010

Veiði dalaði mjög í bæði Blöndu og Norðurá á seinni vaktinni í dags svona nokkurn vegin eins og búast mátti við....

 
Blanda2010

Ágætt í morgun á báðum vígstöðvum - 6.6.2010

Átta laxar komu á morgunvaktinni úr Blöndu og þrír úr Norðurá. Þessi prýðisgóða byrjun heldur því dampi.

 
Blanda2010

Átta í viðbót - 6.6.2010

Sex laxar veiddust í Blöndu á seinni vakt og tveir til viðbótar í Norðurá. Þar með endaði þetta í 22 í Blöndu og 5 í Norðurá.

 
Blanda2010

Stórkostleg opnun Blöndu - 5.6.2010

Morgunvaktin í Blöndu gaf 16 laxa, allt stóra fallega tveggja ára bolta, upp í 14-15 punda og varla var fisk að sjá undir 9-10 pundum. Er þetta að sögn ein besta, ef ekki sú besta opnun sem menn muna í Blöndu og lofar sannarlega góðu fyrir framhaldið.

 
Þórdís með 73 cm hrygnu

Norðurá: Bara þrír en lax víða - 5.6.2010

Morgunaflinn í Norðurá var þrír laxar. Skilyrði voru afleit, en það gladdi veiðimenn að sjá laxa víða og hreyfingu á þeim.

 
Bjarni Júl með 80 cm úr Norðurá 2010

Mok í Blöndu – þrír úr Norðurá - 5.6.2010

Nú fyrir stundu voru komnir 3 laxar á land úr Norðurá og 13 úr Blöndu. Frábær skilyrði í  Blöndu, mun lakari í Norðurá....

 
Albert með urriðann, 4 punda

Urriðaparadísin sýnir á sér ýmsar hliðar - 4.6.2010

Urriðaveiðin er að taka við sér á nýjan leik norðan heiða eftir að stuttu kuldakastinu lauk. Menn voru að setja í góða fiska í gærmorgun og í fyrradag, bæði ofan og neðan virkjunnar. Veðurspáin er fín þannig að það eru góðir dagar fram undan.

 
Urriðar úr Elliðavatni

Allur gangur á gengi á silungaslóðum - 3.6.2010

Við höfum talað um að vötnin hafi verið að springa út, enda kominn sá tími vors/sumars. Það þýðir ekki að allir moki upp fiski, öðru nær, en menn eru samt víða að landa fallegum afla.

 
stórbleikja í Laxá í Aðaldal

Aftur snarkólnað nyrðra - 1.6.2010

Urriðaveiðin í vatnsföllum Suður Þingeyjarsýslu hefru dalað á ný eftir að veðurfar snarkólnaði á nýjan leik í gærkvöldi.

 


07 Stöð 2 og RUV komin í stellingarnar og fréttakonan er á tánum.

Laxinn er mættur!

Auðvitað er laxinn kominn upp að ströndinni og einhverjir eru byrjaðir að kíkja í árnar eins og fréttin um hrygnuna í Bíldsfelli staðfestir. Fyrstu árnar opna þann 5.júní og það er snarhlýnandi veður í kortunum. Hér kemur lýsing sjónarvotts....

 
2012 flóðið

Frábær byrjun í Flóðinu

Það er oft spáð í hvað sjóbirtingur hangi lengi í fersku vatni og yfirleitt er talið að þegar komið er fram í mai þá sé hann farinn. Rangt. Hrygningarfiskurinn jú, en allur geldfiskurinn ekki.

 
2012 fyrsti laxinn

Fyrsti laxinn 2012

Ekki þurfti að bíða lengi eftir fyrsta stangarveidda laxi sumarsins, en í morgun veiddist sá ágæti fiskur í Bíldsfelli í Soginu. Það var Smári Þorvaldsson sem veiddi laxinn, en hann var á bleikjuveiðum þegar hann sá hreyfingu sem var augljóslega ekki bleikja.

 
15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Fyrstu laxarnir ættu að vera mættir!

Nú er fimtudagurinn 18.5 og má með nokkurri vissu segja að fyrstu laxarnir séu gengnir í Hvítá í Borgarfirði. Næsti sunnudagur er 21.5 og þann dag sáust fyrstu laxarnir í Laxá í Kjós í fyrra.

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Var komið í gang fyrir hretið

Það hefur verið afskaplega lítið að frétta af bökkum vatnanna síðustu daga enda kannski ekki að undra eins og veðurfarið hefur verið. En fram undir síðustu helgi voru þó að berast fréttir af skotum hér og þar, þannig að vötnin voru byrjuð að taka við sér.

 
Albert Sævarsson þreytir urriða

SVAK með skemmtilega nýjung

Stangaveiðifélag Akureyrar bryddar upp á skemmtilegri nýjung í veiðileyfasölu þessa daganna. Hægt er að kaupa sérstakt Laxárkort með inneign upp á átta daga á þekktum urriðasvæðum.

 
Tómas Helgason með risaurriða úr Þingvallavatni

Veiðiportið eykur þjónustuna

Veiðiportið á Granda hefur lengi streðað við að halda verði niðri á boðlegum vörum. Nú hefur fyrirtækið opnað vefsíðu til að bæta þjónustuna.

 
KJOS-2008-06-19-LAXFOSS

Hreggnasi áfram með Laxá í Kjós

Hreggnasi hefur gengið frá endurnýjun á leigusamningi fyrir Laxá í Kjós til tveggja ára og þar með er á sama deginum tekið fyrir spennandi mögulegt útboð! Áður kom nánast sama frétt frá Norðurá.  Jón Þór Júlíusson staðfesti að samkomulag hefði náðst, en baðst undan að tala um krónur og aura.

 
23 Í Stekknum var Ólafur Vigfússon að flengja Spegilinn, en það var sama sagan þar....

Norðurá áfram hjá SVFR

Veiðifélag Norðurár og SVFR munu hafa náð samkomulagi um áframhaldandi leigu SVFR á ánni um komandi ár. Þar með verður ekkert af útboði því sem margur áleit að gæti orðið hið forvitnilegasta, enda SVFR verið lengur með Norðurá en gengur og gerist.

 
Minni-05

Í tilefni af komandi hreti

Veðurfar hefur verið með kaldara móti í vor þrátt fyrir fallega daga, en samt aflast vel víða, einkum þó á sjóbirtingsslóðum og í Þingvalla- og Elliðavatni. Nú er hret í kortunum....

 
urriði úr Þingvallavatni

Þingvallavatn og makríllinn

Haft er fyrir satt að hvað eftir annað séu að koma lífleg urriðaskot í Þingvallavatni. Fréttir berast af stórum, stórum urriðum sem eru að slaga upp í 20 punda þeir stærstu. En það berast einnig fregnir af óþverraskap.

 
2012 Gordon Ramsey í Tungulæk 2

Gordon Ramsey í góðum málum Tungulæk

Skoski strigakjafturinn og sjónvarpskokkurinn heimsfrægi Gordon Ramsey, var staddur hér á landi um helgina og veiddi m.a. væna sjóbirtinga í Tungulæk í Landbroti. Hér eru skemmtilegar myndir af þeirri uppákomu...

 
2012 Haus á stórfiski

Enn er birtingur á ferðinni!

VoV getur staðfest að enn er góð veiðivon á sjóbirtingsslóðum í Skaftárhreppi. Það eru hins vegar fáir að veiða þessa daganna, kannski að menn hafi ekki trú á birtingi í mai?

 
Afli 1.mai 2009

Sitt lítið af hverju af silungaslóðum

Það berast fréttir heán að og þaðan. Víðar byrjuð veiði en í Þingvallavatni, en það mun að mestu vera vatnasilungsveiðin sem verður í sviðsljósinu þangað til að laxinn fer að ganga því birtingurinn er að miklu leyti farinn úr ánum.

 
2012 þingv3

Enn eitt tröllið úr Þingvallavatni á þessu vori

Menn eru greinilega að lenda í ævintýrum í Þingvallavatni þó að mesta veislan sé eflaust framundan. Við fengum frásögn og myndir af skemmitlegri uppákomu, 16 punda urriði takk fyrir...

 
2012 urriðatröll

Einn sá flottasti úr Þingvallavatni í vor!

Eins og fram hefur komið, hafa menn verið að setja í væna urriða í Þingvallavatni að undanförnu og má fastlega búast við að veiðin bara glæðist á næstu dögum og vikum. Hér er einn af þeim flottari í vor.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Um útboðið í Gljúfurá í Hún

Búið er að opna tilboðin í Gljúfurá í Húnavatnssýslu sem fór heldur óvænt í útboð á dögunum. Okkur er tjáð að Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sé með hæsta tilboð og vildi hann ekki neita því aðspurður.

 
Lax úr Miðfjarðará

Sölufyrirtækin með stórafmæli

Veiðileyfasalinn Lax-á, sem Árni Baldursson veitir forstöðu, á 25 ára afmæli um þessar mundir og fyrir skemmstu átti einn keppinautanna, Strengir, fyrirtæki Þrastar Elliðasonar, 20 ára afmæli á fimmtugsafmælisdegi eigandans.

 
Ellidaa-010507-04

Urriðinn sólginn í nýlunduna

Urriðinn er farinn að veiðast í Þingvallavatni eins og fram hefur komið og nokkrir ferlegir boltar eru meðal þeirra sem náðst hafa á land. Margir eru að veiða á flugu, aðrir á spón og beitu. En svo er líka þetta nýja....

 
2012 risaurriði

„Hvers vegna alltaf ég?“

Þeir sem fygljast með enska boltanum þekkja eflaust áletrunina á bolnum hjá hinum undarlega Mario Balotelli, Why always me? Veiðimaður að nafni Nils Folmer Jörgensen gæti spurt sig sömu spurningar, nema af öðru tilefni.

 
urriði úr Þingvallavatni

Vantar ekki tröllin í Þingvallavatni

Menn eru farnir að róta upp risa urriðum í Þingvallavatni þó að hefðbundinn veiðitími sé ekki hafinn. Við höfum heyrt um afla frá „einkajörðum“ og afla þar sem staðurinn er ekki gefinn upp. Rauði þráðurinn í öllum þessum fréttum er.....

 
Fossinn í Korpu

Vilja breyta fossinum í Korpu

Leigutakar Korpu, eða Úlfarsár eins og hún heitir líka, íhuga nú að gera breytingar á Fossinum, einum albesta veiðistað árinnar, en hann er rétt ofan við sjávarmál.

 
Sæsteinssuga föst á laxi í Ytri Rangá

Eitt og annað um sugur

Á ársfundi VMSt í síðustu viku var vikið að athugunum sem gerðar hafa verið á sæsteinssugu á Íslandi. Þær eru af Evrópskum uppruna og merki um hrygningu hafa ekki fundist.

 
Halalýs

Vont ástand norskra laxveiðiáa

Fram kom á ársfundi VMSt í gær, að 124 af 400 laxveiðiám Noregs eru lokaðar og þjóðarbúið þar er að verða af andvirði 6,5 milljarða íslenskra króna. Rætur má rekja beint og óbeint til laxeldis.

 
02

„Tilbúið í almenna notkun“

Aðeins hefur verið fiktað við skráningu veiðibóka dagsdaglega á internetinu og nú er svo komið í þróun þeirrar tækni ef svo má að orði komast, að það er ekkert að vanbúnaði að setja slíkt í gang á fullu.

 
2012 Lónbuinn 3

Lónbúinn frumsýndur

Ný kvikmynd um lífshlaup laxins í íslenskri náttúru verður frumsýn í Bíó Paradís á komandi föstudagskvöldi. Myndin ber heitið Lónbúinn....

 
27 - Flottur!

Forvitnilegur ársfundur VMSt

Óhætt er að mæla með hinum árvissa ársfundi Veiðimálastofnunar, en hann fer fram að þessu sinni á morgun, fimmtudaginn 26.apríl í Bíósal Hótel Loftleiða (Natura víst í dag). Það kennir margra grasa að venju.

 
2012 4 Vatnamót

Veiðiþorstinn horfinn í bili

Helstu veiðitölur þessa vors koma frá Litluá og Tungulæk, en veiði var líka góð framan í Vatnamótum. Eitthvað hefur þó dregið úr þar, mögulega vegna aukins kulda þar um slóðir.

 
2012 sinueldar við Grímsá

All svakalegt sinuský

Stefán Pétursson var ásamt félögum sínum við veiðar á sjóbirtingssvæðinu í Grímsá síðast liðinn laugardag og varð þeim að vonum hverft við þegar tröllaukið ský gaus upp og færðist óðfluga nær!

 
2012 Haukubændur

Skrifað undir í Haukadal

Um helgina skrifuðu landeiegdnur við Haukadalsá undir nýjan samning við nýja leigutaka um leigu á ánni frá 2013 til 2016, að áður undangengnu útboði. Svisslendingurinn Doppler var áður með ána á leigu.

 
2012 eldvatn

Himnaríki að vori

Sagt er að hver árstíð hafi sína fegurð og mörgum finnst vorið bera þar af. Hvað sem því líður, þá er hér dæmi um hvers vegna margir eru þeirrar skoðunar....

 
2012 litlaá

Svaka tölur og fiskar úr Litluá

Við höfum af og til heyrt rosalegar tölur úr Litluá í Kelduhverfi í vor, en fengum núna loksins eitthvað staðfest til að moða úr. Og það sem fékkst staðfest, undirstrikaði að fregnir af svæðinu voru síður en svo ýktar.

 
IMG_9601ow

Stórfiskar úr Galtalæk

Menn eru víða að kroppa upp fisk og við heyrðum t.d. í þeim sem byrjuðu í Eldvatni í fyrradag og höfðu fengið þrjá stóra fiska fyrir kvöldið og misst nokkra. En svo er þetta með Galtalæk!

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Elliðavatnið opnað

Veiði hófst í Elliðavatni í dag og var dálítið líf og fisk að hafa, sérstaklega uppúr miðjum morgni eftir því sem við komumst næst.

 
2011 nýja veiðihúsið

Fossgerði, nýtt veiðihús við Selá

Nú er um það bil að ljúka byggingu nýs veiðihús við Selá í Vopnafirði og er það eitthvert albesta veiðihús landsins, þvert ofan í kreppkjaftæðið. 

 
Thingvellir-010507-05

Fluguveiði í Þingvallavatni

Þingvallavatnið er góður vettvangur byrjenda í fluguveiði, enda er nú í boði námskeið undiryfirskriftinni Fluguveiði í Þingvallavatni.

 
2012 eldvatn Vivvi við Hundavað

Að koma vel haldinn undan vetri

Við höfum verið með óvenju tíðar fréttir af Eldvatni í Meðallandi að þessu sinni.  Hér er aðeins meira, kannski er þetta þó kannski hvað skemmtilegast að skoða m.t.t. hversu stórkostlega vel haldinn þessi vorfiskur er!

 
Vatnamót

Fréttir af birtingum

Enn sytra inn fréttir af sjóbirtingum og má af þeim ráða að enn sé fiskur í ánum, a.m.k. í Tungulæk, Steinsmýrarvötnum, Eldvatni og Vatnamótum.

 
Elliðaá

Stangaveiðifélagið „komið heim“

Það var stór dagur hjá SVFR í dag, en skrifstofa félagsins var flutt í nýtt húsnæði í húsakynnum OR í Elliðaárdal. Hæðin í Austurveri verður seld. Formaðurinn segir að SVFR sé nú „komið heim“.

 
2012 4

Gerðu það gott í Kvíslinni

Það gleymist stundum að það eru sjóbirtingsár sem opna á vorin fyrir norðan, ekki aðeins á Suðurlandi. Ein þeirra er Húseyjarkvísl. Við heyrðum í Jónasi Elvari Halldórssyni sem var þar fyrir skemmstu með félögum sínum.

 
Lilja Ola með 9 punda birting 2012

Líf og fjör í Eldvatni

Eins og við gátum um og reyndar leiðréttum, þá hefur veiði verið prýðileg í Eldvatni í vor. Það var aðeins í opnun að menn náðu ekki takti við ána, en síðan hefur gefið vel. Við nældum í nokkrar nýjar myndir...

 
13_MAI_Ellidavatn

Guttormur kynnir Elliðavatn

Eftir nákvæmlega viku, fimmtudaginn 19.apríl, sem er Sumardagurinn fyrsti, opnar Elliðavatn. Þeir sem vilja kynnast vatninu nánar fá nú magnað tækifæri til þess.

 
Eldvatn-Hundavað 2011

„Stórt“ holl í Eldvatni

Í síðustu frétt okkar, sem var samantekt af ýmsum svæðum, gætti ónákvæmni um gang mála í Eldvatni. Þar hefur veiðin verið betri en okkur hafði skilist......

 
Tungu20103

Allur gangur á því

Það hefur verið fremur rólegt að frétta af veiðislóðum það sem af er vori. Sjóbirtingsveiðin víðast „í lagi“, en ekkert allt of mikið að gerast þar fyrir utan. Rennum yfir eitt og annað.

 
2012 - 2

Af sjóbirtingum í vor

Sjóbirtingsvertíðin hefur byrjað með miklum ágætum þó að smá skugga beri á þar sem Varmá hefur hikstað. En „kanónurnar“ fyrir austan, hafa gefið prýðilega.

 
Veiðimaður við Varmá 1.mai 2009

Fiskur genginn úr Varmá?

Vorveiði á sjóbirtingi hefur byrjað með nokkuð hefðbundnu sniði. Ekki þó í Varmá, sem var afar dauf í opnun og talað var um að fiskur væri þar genginn til hafs.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Gljúfurá í Hún í útboð

Gljúfurá í Húnavtnssýslu hefur verið boðin út frá og með árinu 2013 til og með 2016. Hreggnasi hefur leigt ána síðustu árin.

 
Hrutafjardara-sept-2009-08

Strengir áfram með Hrútu

Það virðist ekki síður vera að gerast að leigutakar endurnýi leigusamninga en að ár fari í útboð. Strengir voru t.d. að framlengja Hrútuna til þriggja ára.

 
2012 Tungulækur

Tíðindi héðan og þaðan

Það var rólegt í Minnivallalæk í gær, þegar áin var opnuð, en þrátt fyrir að veður hafi versnað, þá jókst veiðin mjög í Tungufljóti er á hollið leið.

 
2012 opnun Geirlandsár

Vetur skollinn aftur á fyrir austan

Yfirleitt kemur sumar eftir vor, en ef það er vorlegt óvenjusnemma getur það alveg eins gerst að veturinn minnir á að hann er alls ekki búinn að syngja sitt síðasta.

 

Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica