Vorið er gengið í garð með vaknandi náttúru og góðri silungsveiði norðan heiða.
Eitt af betri voveiðivötnum okkar er Heiðarvatn í Mýrdal og ef einhver hélt að það væri bannað að veiða þar þá er það rangt...
Veiðin er að byrja frábærlega á urriðasvæðum Laxár ofan virkjunar, líkt og í fyrra. En spurning með niðursveifluna sem verið hefur. Í fyrra dalaði veiðin síðan, en menn töldu sig þó sjá klár merki um að allt færi á uppvegin aftur og við skulum vona það besta með framhaldið.
Það var frábær veiði þegar Laxá í S.Þing var opnuð ofan virkunar nú um helgina, vel á þriðja hundrað fiska landaðir á efra svæðinu og „vel sæmleg“ veiði á „dalnum"....
Eins og fram hefur komið í utanumhaldi okkar með urriðaveiðinni í Laxá neðan virkjunnar þá hefur veiðin verið bærilegasta kropp, nóg til að halda mönnum á tánum, en nokkur kuldi hefur hamlað nokkuð. Við fengum góða sendingu í kvöld...
Dagur tvö á urriðasvæðunum í Aðaldal var áþekkur degi eitt, þ.e.a.s. veiðin þokkalegt kropp en vorkoman er seinni á ferð nyrðra heldur en syðra og munar slatta.
Það var róleg byrjun á urriðasvæðunum í Laxá í Aðaldal í dag. Veiði byrjaði á helstu svæðunum í Aðaldal og á Torfunum , án þess að við vitum um Nesveiðarnar.....
Það eru jafnan stopular fréttir frá Fitjaflóði í Grenlæk, en Suðurnesjamenn byrjuðu þar vel eins og frá var greint. Nú heyrðum við af öðru mjög góðu holli.
Arnarvatnsá í Mývatnssveit var opnuð s.l. laugardag af sömu tveimur strákguttunum og stóðu þar í stórræðum í fyrra....
Eftir því sem við komumst næst þá hefur verið að koma eitthvað af bleikju upp úr Þingvallavatni að undanförnu. Víða hafa vötnin og ár verið að koma til að undanförnu.
Samkvæmt vef SVFR veiddist lax í Hlíðarvatni fyrir skemmstu og látið í veðri vaka að um fyrsta stangarveidda lax sumarsins sé að ræða. Er vitnað í morgunþátt Bergsson og Blöndal á Rás 2.
VoV leit við í Minnivallalæk í gær og bleytti færi í einar þrjár klukkustundir. Áin er lífleg og fiskar í hverjum hyl.
Fitjaflóðið, eða bara Flóðið, var opnað um síðustu helgi og fór til þess hópur frá Stangaveiðifélagi Keflavíkur.
Líkt og við greindum frá í vikunni, þá er mikið fjör í Hlíðarvatni og allt að gerast. Greinilegt samkvæmt fréttum, að mai hefur verið góður og vatnið komið vel undan vetri ef svo má segja.
Greinilegt era ð Hlíðarvatn hefur tekið við sér eftir að hlýna tók í veðri. Nú í vikunni fréttist t.d. af miklu og góðu bleikjuskoti austast í vatninu, af töngum sem þar eru.
Sjóbleikjuveiði hófst í Breiðdalsá um helgina og er ljóst af fréttum að austan að bleikjan er mætt og búast má við góðum fréttum þaðan á næstunni.
Það berast fréttir héðan og þaðan og sumar eru góðar en aðrar á rórri nótunum.
Auðvitað er laxinn kominn upp að ströndinni og einhverjir eru byrjaðir að kíkja í árnar eins og fréttin um hrygnuna í Bíldsfelli staðfestir. Fyrstu árnar opna þann 5.júní og það er snarhlýnandi veður í kortunum. Hér kemur lýsing sjónarvotts....
Það er oft spáð í hvað sjóbirtingur hangi lengi í fersku vatni og yfirleitt er talið að þegar komið er fram í mai þá sé hann farinn. Rangt. Hrygningarfiskurinn jú, en allur geldfiskurinn ekki.
Ekki þurfti að bíða lengi eftir fyrsta stangarveidda laxi sumarsins, en í morgun veiddist sá ágæti fiskur í Bíldsfelli í Soginu. Það var Smári Þorvaldsson sem veiddi laxinn, en hann var á bleikjuveiðum þegar hann sá hreyfingu sem var augljóslega ekki bleikja.
Nú er fimtudagurinn 18.5 og má með nokkurri vissu segja að fyrstu laxarnir séu gengnir í Hvítá í Borgarfirði. Næsti sunnudagur er 21.5 og þann dag sáust fyrstu laxarnir í Laxá í Kjós í fyrra.
Það hefur verið afskaplega lítið að frétta af bökkum vatnanna síðustu daga enda kannski ekki að undra eins og veðurfarið hefur verið. En fram undir síðustu helgi voru þó að berast fréttir af skotum hér og þar, þannig að vötnin voru byrjuð að taka við sér.
Stangaveiðifélag Akureyrar bryddar upp á skemmtilegri nýjung í veiðileyfasölu þessa daganna. Hægt er að kaupa sérstakt Laxárkort með inneign upp á átta daga á þekktum urriðasvæðum.
Veiðiportið á Granda hefur lengi streðað við að halda verði niðri á boðlegum vörum. Nú hefur fyrirtækið opnað vefsíðu til að bæta þjónustuna.
Hreggnasi hefur gengið frá endurnýjun á leigusamningi fyrir Laxá í Kjós til tveggja ára og þar með er á sama deginum tekið fyrir spennandi mögulegt útboð! Áður kom nánast sama frétt frá Norðurá. Jón Þór Júlíusson staðfesti að samkomulag hefði náðst, en baðst undan að tala um krónur og aura.
Veiðifélag Norðurár og SVFR munu hafa náð samkomulagi um áframhaldandi leigu SVFR á ánni um komandi ár. Þar með verður ekkert af útboði því sem margur áleit að gæti orðið hið forvitnilegasta, enda SVFR verið lengur með Norðurá en gengur og gerist.
Veðurfar hefur verið með kaldara móti í vor þrátt fyrir fallega daga, en samt aflast vel víða, einkum þó á sjóbirtingsslóðum og í Þingvalla- og Elliðavatni. Nú er hret í kortunum....
Haft er fyrir satt að hvað eftir annað séu að koma lífleg urriðaskot í Þingvallavatni. Fréttir berast af stórum, stórum urriðum sem eru að slaga upp í 20 punda þeir stærstu. En það berast einnig fregnir af óþverraskap.
Skoski strigakjafturinn og sjónvarpskokkurinn heimsfrægi Gordon Ramsey, var staddur hér á landi um helgina og veiddi m.a. væna sjóbirtinga í Tungulæk í Landbroti. Hér eru skemmtilegar myndir af þeirri uppákomu...
VoV getur staðfest að enn er góð veiðivon á sjóbirtingsslóðum í Skaftárhreppi. Það eru hins vegar fáir að veiða þessa daganna, kannski að menn hafi ekki trú á birtingi í mai?
Það berast fréttir heán að og þaðan. Víðar byrjuð veiði en í Þingvallavatni, en það mun að mestu vera vatnasilungsveiðin sem verður í sviðsljósinu þangað til að laxinn fer að ganga því birtingurinn er að miklu leyti farinn úr ánum.
Menn eru greinilega að lenda í ævintýrum í Þingvallavatni þó að mesta veislan sé eflaust framundan. Við fengum frásögn og myndir af skemmitlegri uppákomu, 16 punda urriði takk fyrir...
Eins og fram hefur komið, hafa menn verið að setja í væna urriða í Þingvallavatni að undanförnu og má fastlega búast við að veiðin bara glæðist á næstu dögum og vikum. Hér er einn af þeim flottari í vor.
Búið er að opna tilboðin í Gljúfurá í Húnavatnssýslu sem fór heldur óvænt í útboð á dögunum. Okkur er tjáð að Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sé með hæsta tilboð og vildi hann ekki neita því aðspurður.
Veiðileyfasalinn Lax-á, sem Árni Baldursson veitir forstöðu, á 25 ára afmæli um þessar mundir og fyrir skemmstu átti einn keppinautanna, Strengir, fyrirtæki Þrastar Elliðasonar, 20 ára afmæli á fimmtugsafmælisdegi eigandans.
Urriðinn er farinn að veiðast í Þingvallavatni eins og fram hefur komið og nokkrir ferlegir boltar eru meðal þeirra sem náðst hafa á land. Margir eru að veiða á flugu, aðrir á spón og beitu. En svo er líka þetta nýja....
Þeir sem fygljast með enska boltanum þekkja eflaust áletrunina á bolnum hjá hinum undarlega Mario Balotelli, Why always me? Veiðimaður að nafni Nils Folmer Jörgensen gæti spurt sig sömu spurningar, nema af öðru tilefni.
Menn eru farnir að róta upp risa urriðum í Þingvallavatni þó að hefðbundinn veiðitími sé ekki hafinn. Við höfum heyrt um afla frá „einkajörðum“ og afla þar sem staðurinn er ekki gefinn upp. Rauði þráðurinn í öllum þessum fréttum er.....
Leigutakar Korpu, eða Úlfarsár eins og hún heitir líka, íhuga nú að gera breytingar á Fossinum, einum albesta veiðistað árinnar, en hann er rétt ofan við sjávarmál.
Á ársfundi VMSt í síðustu viku var vikið að athugunum sem gerðar hafa verið á sæsteinssugu á Íslandi. Þær eru af Evrópskum uppruna og merki um hrygningu hafa ekki fundist.
Fram kom á ársfundi VMSt í gær, að 124 af 400 laxveiðiám Noregs eru lokaðar og þjóðarbúið þar er að verða af andvirði 6,5 milljarða íslenskra króna. Rætur má rekja beint og óbeint til laxeldis.
Aðeins hefur verið fiktað við skráningu veiðibóka dagsdaglega á internetinu og nú er svo komið í þróun þeirrar tækni ef svo má að orði komast, að það er ekkert að vanbúnaði að setja slíkt í gang á fullu.
Ný kvikmynd um lífshlaup laxins í íslenskri náttúru verður frumsýn í Bíó Paradís á komandi föstudagskvöldi. Myndin ber heitið Lónbúinn....
Óhætt er að mæla með hinum árvissa ársfundi Veiðimálastofnunar, en hann fer fram að þessu sinni á morgun, fimmtudaginn 26.apríl í Bíósal Hótel Loftleiða (Natura víst í dag). Það kennir margra grasa að venju.
Helstu veiðitölur þessa vors koma frá Litluá og Tungulæk, en veiði var líka góð framan í Vatnamótum. Eitthvað hefur þó dregið úr þar, mögulega vegna aukins kulda þar um slóðir.
Stefán Pétursson var ásamt félögum sínum við veiðar á sjóbirtingssvæðinu í Grímsá síðast liðinn laugardag og varð þeim að vonum hverft við þegar tröllaukið ský gaus upp og færðist óðfluga nær!
Um helgina skrifuðu landeiegdnur við Haukadalsá undir nýjan samning við nýja leigutaka um leigu á ánni frá 2013 til 2016, að áður undangengnu útboði. Svisslendingurinn Doppler var áður með ána á leigu.
Sagt er að hver árstíð hafi sína fegurð og mörgum finnst vorið bera þar af. Hvað sem því líður, þá er hér dæmi um hvers vegna margir eru þeirrar skoðunar....
Við höfum af og til heyrt rosalegar tölur úr Litluá í Kelduhverfi í vor, en fengum núna loksins eitthvað staðfest til að moða úr. Og það sem fékkst staðfest, undirstrikaði að fregnir af svæðinu voru síður en svo ýktar.
Menn eru víða að kroppa upp fisk og við heyrðum t.d. í þeim sem byrjuðu í Eldvatni í fyrradag og höfðu fengið þrjá stóra fiska fyrir kvöldið og misst nokkra. En svo er þetta með Galtalæk!
Veiði hófst í Elliðavatni í dag og var dálítið líf og fisk að hafa, sérstaklega uppúr miðjum morgni eftir því sem við komumst næst.
Nú er um það bil að ljúka byggingu nýs veiðihús við Selá í Vopnafirði og er það eitthvert albesta veiðihús landsins, þvert ofan í kreppkjaftæðið.
Þingvallavatnið er góður vettvangur byrjenda í fluguveiði, enda er nú í boði námskeið undiryfirskriftinni Fluguveiði í Þingvallavatni.
Við höfum verið með óvenju tíðar fréttir af Eldvatni í Meðallandi að þessu sinni. Hér er aðeins meira, kannski er þetta þó kannski hvað skemmtilegast að skoða m.t.t. hversu stórkostlega vel haldinn þessi vorfiskur er!
Enn sytra inn fréttir af sjóbirtingum og má af þeim ráða að enn sé fiskur í ánum, a.m.k. í Tungulæk, Steinsmýrarvötnum, Eldvatni og Vatnamótum.
Það var stór dagur hjá SVFR í dag, en skrifstofa félagsins var flutt í nýtt húsnæði í húsakynnum OR í Elliðaárdal. Hæðin í Austurveri verður seld. Formaðurinn segir að SVFR sé nú „komið heim“.
Það gleymist stundum að það eru sjóbirtingsár sem opna á vorin fyrir norðan, ekki aðeins á Suðurlandi. Ein þeirra er Húseyjarkvísl. Við heyrðum í Jónasi Elvari Halldórssyni sem var þar fyrir skemmstu með félögum sínum.
Eins og við gátum um og reyndar leiðréttum, þá hefur veiði verið prýðileg í Eldvatni í vor. Það var aðeins í opnun að menn náðu ekki takti við ána, en síðan hefur gefið vel. Við nældum í nokkrar nýjar myndir...
Eftir nákvæmlega viku, fimmtudaginn 19.apríl, sem er Sumardagurinn fyrsti, opnar Elliðavatn. Þeir sem vilja kynnast vatninu nánar fá nú magnað tækifæri til þess.
Í síðustu frétt okkar, sem var samantekt af ýmsum svæðum, gætti ónákvæmni um gang mála í Eldvatni. Þar hefur veiðin verið betri en okkur hafði skilist......
Það hefur verið fremur rólegt að frétta af veiðislóðum það sem af er vori. Sjóbirtingsveiðin víðast „í lagi“, en ekkert allt of mikið að gerast þar fyrir utan. Rennum yfir eitt og annað.
Sjóbirtingsvertíðin hefur byrjað með miklum ágætum þó að smá skugga beri á þar sem Varmá hefur hikstað. En „kanónurnar“ fyrir austan, hafa gefið prýðilega.
Vorveiði á sjóbirtingi hefur byrjað með nokkuð hefðbundnu sniði. Ekki þó í Varmá, sem var afar dauf í opnun og talað var um að fiskur væri þar genginn til hafs.
Gljúfurá í Húnavtnssýslu hefur verið boðin út frá og með árinu 2013 til og með 2016. Hreggnasi hefur leigt ána síðustu árin.
Það virðist ekki síður vera að gerast að leigutakar endurnýi leigusamninga en að ár fari í útboð. Strengir voru t.d. að framlengja Hrútuna til þriggja ára.
Það var rólegt í Minnivallalæk í gær, þegar áin var opnuð, en þrátt fyrir að veður hafi versnað, þá jókst veiðin mjög í Tungufljóti er á hollið leið.
Yfirleitt kemur sumar eftir vor, en ef það er vorlegt óvenjusnemma getur það alveg eins gerst að veturinn minnir á að hann er alls ekki búinn að syngja sitt síðasta.