Vangaveltur um Haukuútboðið
Menn hafa til 10.mars að skila inn tilboðum í Haukadalsá í Dölum, en VoV hefur heyrt á ýmsum að eitt og annað í útboðsgögnunum valdi því að menn hiki og tvístigi.

Eins og við greindum frá á dögunum þá fór Haukadalsá nýverið í útboð og vakti það að sjálfsögðu athygli, enda hafa þær nokkrar þekktar farið í útboð hin seinni misseri og menn hafa séð talsvert hækkandi leigutölur. Eflaust munu allnokkrir bjóða í Haukuna áður en yfir lýkur, en við höfum það þó fyrir satt að ýmsir stoppi við eitt og annað í útboðsgögnunum. T.d. mun þar standa að veiðitími í ánni sé frá 10.júní til 7.september. Þetta meta menn sem svo að áin opni of snemma og hætta sé á all mörgum dögum þar sem lítið er gengið af laxi í ána á sama tíma og mjög vinsæll tími um haustið er sleginn af. Það er nokkuð til í þessu, þetta er opnun upp á fimm dögum fyrr en í Kjarrá til að mynda og hin seinni ár hafa aðeins Norðurá og Blanda virst standa undir opnunum svo snemma sumars, en þær fara báðar í gang 5.júní. Tilhneigingin hin seinni ár hefur verið að færa aftur opnanir vegna þess hve tveggja ára laxi hefur fækkað og engan vegin á vísan að róa að aftur komi sumar eins og 2010 þegar lax gengur jafn snemma og þá var raunin.
Þá höfum við og heyrt að menn séu einnig ósattir við að Þverá sé ekki með í útboðspakkanum. Þverá er stútungsspræna sem rennur í Haukuna við veiðistaðinn Blóta, rétt neðan veiðihússins. Í Þverá gengur talsvert af laxi, hún er fjölbreytt og falleg og hin prýðilegasta viðbót við veiðisvæðið. En hún fylgir ekki. Allt gerir þetta útboðið bara meira spennandi, eða hvað?
