votnogveidi_Fors_2009-02
almennt

VMSt og HÍ í samstarf

24.1.2012

 

 

Siggi Guðjóns og Kristín rektor HÍVeiðimálastofnun og Háskóli Íslands hafa undirritað samstarfssamning á sviði rannsókna og menntunar. Í fréttatilkynningu frá VMSt eru vonir bundnar við gerninginn að hann leiði gott af sér til beggja hlutaðeigandi.

Í frétt sem birtist nýverið á vef VMSt segir meðal annars eftirfarandi: „Markmið samningsins er að efla þekkingu um vernd og nýtingu auðlinda í ferskvatni, grunnþekkingu á nýtingu fiskstofna, á fiskrækt og fiskeldi. 

Til þess að ná markmiðunum munu Háskóli Íslands og Veiðimálastofnun skipa samstarfsnefnd með tveimur fulltrúum frá hvorri stofnun. Þar munu fulltrúar beggja aðila m.a. kynna rannsóknir og hugmyndir að sameiginlegum rannsóknaverkefnum, þ.m.t. hugmyndir að námsverkefnum sem unnin verða á grundvelli efniviðar og gagna Veiðimálastofnunar. Þá á nefndin að vinna að sameiginlegum umsóknum um rannsóknastyrki og greina möguleika á því sviði.

Meðal annarra verkefna samstarfsnefndarinnar er að stuðla að samvinnu stofnananna um þróun framhaldsnáms við Háskóla Íslands á sameiginlegum fræðasviðum. Lögð verður áhersla á að sérfræðingar Veiðimálastofnunar taki þátt í kennslu í námskeiðum sem snúa að sérsviðum þeirra. Þá verður nemendum við Háskóla Íslands gefinn kostur á að vinna verkefni undir sameiginlegri leiðsögn Veiðimálastofnunar og starfsmanna háskólans. Á myndinni að ofan má sjá Kristínu Ingólfsdóttur rektor HÍ og Sigurð Guðjónsson framkvæmdastjóra VMSt handsala samninginn. Myndin er fengin af www.veidimal.is  Sjá nánar á www.veidimal.is




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica