votnogveidi_Fors_2009-02
almennt

Loop skiptir um eigendur

23.1.2012

 

Crist Verbiski hjá Loop

Chris Verbiski hjá Goldcup AB með tröllvaxinn argentínskan sjóbirting.

Hið þekkta sænska veiðivörufyrirtæki Loop Tackle Design hefur skipt um eigendur að stórum hluta og þar með tryggt reksturinn en fyrirtækið var orðið illa sett og horfur slæmar. Frá þessu var greint á vefnum www.fluefiske.net fyrir skemmstu.

Það er sænska fyrirtækið Goldcup AB sem keypti nýverið 75 prósenta hlut í Loop. Haft var eftir Crister Sjöberg, stjórnarmanni hjá Loop, að þeir hjá fyrirtækinu væru afskaplega ánægðir með að treysta stoðirnar og skapa festu í rekstrinum sem spannaði 30 ár. Chris Verbiski, stjórnarformaður hjá Goldcup sagði þá félaga hafa séð Loop sem sniðugan fjárfestingarkost, enda væri fyrirtækið með mikla reynslu og spennandi þróunarvinnu í gangi, m.a. með Opti línunni og ekki síst Cross S1 línunni, sem væru þær bestu stangir sem hann hefði reynt um daganna. Goldcup er sænsk deild í kanadíska fyrirtækinu Coordinates Capital Corporation, sem er fjárfestingarfélag á sviði ferðaþjónustu og framandi veiðiferða til Nýfundnalands og Labrador.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica