votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Skjálfandafljót: Félag tengt Lax-á með hæsta boð

18.1.2012

 

Lax úr MiðfjarðaráBreytinga á veiðitilhögun er að vænta í Skjálfandafljóti eftir að landeigendur opnuðu tilboð í A-deild árinnar, sem er með 6 laxastangir og 10 silungastangir. Há tilboð bárust.

Hæsta boð var upp á 13,6 milljónir skv áreiðanlegum heimildum, en fyrri leigutakar voru að greiða um 5 milljónir, þannig að hækkunin er umtalsverð og í takt við útkoma annarra útboða í seinni tíð.  Stefán Sigurðsson, sölustjóri innanlands hjá Lax-á er skrifaður fyrir hæsta boði. Hann sagði í samtali við VoV:  Stefán Sigurðsson bauð í Skjálfandafljót, en það má segja að það sé félag tengt Lax-á þar sem ég er einn af eigendum Lax-á. Ég get alveg skrifað doðrant um Skjálfandafljót en þar veiddi ég fyrstu laxana mína sem krakki . Að öðru leyti er ekki tímabært að ég tjái mig meira um málið, veiðifélagið fer nú yfir tilboðin, en ég vona það besta.“

Mikil og góð laxveiði er í Skjálfandafljóti þó svo að fáum sögum fari af því. Kalla má fljótið vel geymt leyndarmál í þeim efnum. Sjóbleikjuveiði er þar einnig prýðileg, sbr. tíu leyfilegar stangir á umræddu svæði. Hins vegar er Fljótið nokkuð sérstakt sem veiðivatn að því leyti að það er að sjálfsögðu skolað og fer veiðni þess nokkuð saman við ytri aðstæður hverju sinni af þeim sökum.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica