almennt
Nýtt Sportveiðiblað
Nýjasta tölublað Sportveiðiblaðsins var að detta inn um lúguna umhelgina og kennir þar margra grasa eins og fyrri daginn. Hafsjór af greinum og viðtölum úr ýmsum áttum og blandað saman skotveiði og stangaveiði, auk annars...
Það er að bera í bakkafullan lækinn að telja upp eitthvað af efni blaðsins, en um blöndu á skot- og stangaveiðiefni er að ræða, auk þess sem örlar á umfjöllun um almennari útivist sem er nýtt fyrir Sportveiðiblaðið eftir því sem við munum best. . Margt álitlegt lesefni hér á ferðinni.
