votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Meira um Veiðibúðina við lækinn

13.1.2012

 

2011 risalax úr VatnsdalsaStuttu eftir að VoV birti frétt um eignaskipti á Veiðibúðinni við lækinn, var okkur send fréttatilkynning frá kaupanda. Þar kom fleira fram heldur en við birtum. Kíkjum á það.

„Bráð ehf hefur fest kaup á Veiðibúðinni við lækinn í Hafnarfirði.  Smávægilegar breytingar standa yfir þessa dagana og mun verslunin verða opnuð á ný  innan fárra daga full af nýjum vörum. Nafn Veiðibúðarinnar og merki verður óbreytt.  Veiðibúðin við lækinn mun áfram selja hinar feykivinsælu Winston flugustangir, Sage flugustangir,  Rio flugulínur, Tibor hjól, Teeny flugulínur, Tiemco öngla og Redington veiðivörur sem verslunin hefur verið þekkt fyrir.  Ný merki á borð við Simms vöðlur og veiðifatnað, Zpey flugustangir og Scierra veiðivörur verða nú einnig fáanlegar í þessari rótgrónu verslun í hjarta Hafnarfjarðar auk úrvals af fluguhnýtingaefni. Hinn vel þekkti stórveiðimaður Björn K. Rúnarsson (á myndinni með 24 punda hæng úr Hnausastreng í Vatnsdalsá s.l. sumar) mun áfram stýra Veiðibúðinni við lækinn en hann hefur aðstoðað margan veiðimanninn í versluninni um árabil. Veiðibúðin við lækinn í Hafnarfirði verður því áfram ein af leiðandi fluguveiðiverslunum landsins með úrval af vandaðasta veiðibúnaði sem völ er á og faglegri þjónustu vanra veiðimanna.

Nordura-opnun-2007-06-I_2Bráð ehf rekur fyrir verslanirnar Veiðihornið í Síðumúla 8 og Sportbúðina á Krókhálsi auk tveggja netverslana; Veiðimaðurinn – www.Veidimadurinn.is og Flugan – www.Flugan.is . Bráð ehf er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í eigu veiðimannanna Ólafs Vigfússonar og Maríu Önnu Clausen(á myndinni, tekin við Norðurá). Við erum stolt af því að fá tækifæri til að efla Veiðibúðina við lækinn  og byggja á þeim trausta grunni sem fyrri eigendur lögðu. Með stækkun fyrirtækisins eykst hagkvæmni í rekstri og innkaupum sem gerir okkur kleift að vera áfram leiðandi í þjónustu við íslenska og erlenda veiðimenn.“




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica