votnogveidi_Fors_2009-05
almennt

Samið um leigu Þverár/Kjarrár

11.1.2012

 

Þverá undirritun samnings 2012

Frá undirskriftinni í dag. Sitjandi eru t.v. Kristján F. Axelsson og Ingólfur Ásgeirsson, standandi f.v. eru Garðar Víðir Gunnarsson hrl hjá Lex, Magnús Skúlason, Jóhannes Helgason og Ólafur Magnússon stjórnarmenn í Veiðifélagi Þverár/Kjarrár, Arndís Kristjánsdóttir og Jónas Aðalsteinsson hrl hjá Lex.  Mynd Sigurjón Ragnar.

Veiðifélag Þverár og Kjarrár annars vegar og Starir ehf hins vegar undirrituðu í dag leigusamning um ána til fimm ára, frá og með næsta ári og til 2017. Frá útboðinu var greint á dögunum og tókust samningar við hæstbjóðanda.

Starir ehf er félag í eigu Davíðs Mássonar, sem er stjórnarformaður, Halldórs Hafsteinssonar og Ingólfs Ásgeirssonar, en sá síðast nefndi er þekktastur þeirra félaga meðal veiðimanna, enda margreyndur veiðimaður og leiðsögumaður til fjölda ára. Á myndinni hafa menn stillt sér upp við undirritun samningsins. Á myndinni undirrita Kristján F. Axelsson formaður veiðifélags Þverár og Ingólfur Ásgeirsson f. h. Stara ehf leigusamninginn vegna áranna 2013 til 2017. Með þeim á myndinni eru stjórnarmenn í veiðifélagi Þverár ásamt Jónasi Aðalsteinssyni hrl hjá Lögmannsstofunni Lex. Einnig eru á myndini Arndís Kristjánsdóttir og Garðar V Gunnarsson.

Félagið Sporður ehf hefur haft ána á leigu til fjölda ára, en komandi sumar er þeirra síðasta, Starir taka við 2013.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica