votnogveidi_Fors_2009-04
almennt

Flugukastnámskeið Veiðiheims

9.1.2012

 

nemendur Veiðiheims

Nemendur Veiðiheims.

Nú er að fara af stað flugukastnámskeið Veiðiheims. Þau verða þrjú talsins, eitt í janúar, eitt í febrúar og það síðasta í mars.

„Við munum fara í hin ýmsu fluguköst auk þess sem við verðum með uppsettar þrautir sem reyna á fluguköstin. Námskeiðin eru ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiðinni sem og þá sem vilja halda köstunum við og jafnvel bæta við nýjum köstum eða æfa tæknina,“ sagði Einar Guðnason forsprakki Veiðiheims í samtali við VoV. Hann bætti við: „Farið verður í öll undirstöðuatriðin ásamt því að farið verður í kastferla og auk meiri fræðslu um köstin. Námskeiðin fara fram í Íþróttarhöllinni Kórnum við Vallakór í Kópavogi.
Námskeiðin verða haldin á laugardögum og er hvert námskeið þrjú skipti, klukkutími í senn. Bæði verða námskeið fyrir unglinga og krakka, sem og fullorðna. Síðast liðinn september fórum við á viðurkennt kastkennaranámskeið á vegum FFF, þannig að við ættum að vera vel undirbúin fyrir komandi námskeið. Námskeiðin eru hóflega verðsett og er námskeiðsgjald fyrir yngri kynslóðirnar 8.000 krónur en þær eldri 8.500 krónur. Hægt er að lesa sig betur til um námskeiðin á www.veidiheimur.is

Og það er fleira á döfinni: „Eins erum við að fara af stað með kastklúbb sem er hugsaður fyrir þá sem vilja hafa aðstöðu til að æfa og bæta sig í fluguköstum bæði í stuttum sem og lengri köstum. Við munum einnig koma upp nettum kastþrautum sem menn geta æft sig á. Þeir sem hafa áhuga geta sent tölvupóst á einar@veidiheimur.is og fengið frekari upplýsingar.“




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica