almennt
Veiðibúðin við Lækinn skipti um hendur

Það er skammt stórra högga á milli hjá þeim hjónum Maríu Önnu Clausen og Ólafi Vigfússyni. Þau eru nýbúin að segja frá stórbreytingum á Sportbúinni á Krókhálsi og fylgja því eftir með kaupum á einni alskemmtilegustu veiðibúðinni, þessari við Lækinn í Hafnarfirði.
S.l. haust sagði Björn Kristinn Rúnarsson verslunarstjóri VvL okkur í véfréttarstíl að það væru „breytingar“ fram undan hjá Veiðibúðinni við Lækinn. Nú liggur fyrir hvaða breytingar það voru, María Anna og Ólafur eru búin að kaupa búðina við Strandgötuna og bæta henni í sarpinn sinn. Þau reka nú Veiðuhornið, Veiðimanninn, Sportbúðina og Veiðibúðina við Lækinn. Stórveldi stækkaði.
