votnogveidi_Fors_2009-02
almennt

Breytingar hjá Sportbúðinni

5.1.2012

 

Stór tíðindi eru að verða í búðarflóru veiðimanna um þessar mundir, en Sportbúðin að Krókhálsi 5 verður lokað í næstu viku, og síðan opnuð uppá nýtt hinu megin við götuna, í húsi Harðviðarvals, eða Krókhálsi 4.

Nordura-opnun-2007-06-I_2Í fréttatilkynningu sem barst frá Ólafi Vigfússyni og Maríu Önnu Clausen, sem reka búðina, segir eftirfarandi:  „Talsverðar breytingar verða á Sportbúðinni á Krókhálsi um þessar mundir en verslunin sem starfrækt hefur verið að Krókhálsi 5 síðasliðin 5 ár verður flutt á næstunni.  Ekki verður þó um langan veg að fara því verslunin verður flutt úr húsi númer 5, yfir götuna og í húsnæði Harðviðarvals að Krókhálsi 4.  Ólafur bætti við þetta í samtali við VoV:  „Af þessu tilefni hefst rýmingarsala í Sportbúðinni næstkomandi föstudag(á morgun) og stendur yfir helgina, kl 10-19 á morgun, 10-16 á laugardag og 12-16 á sunnudag.  Útsölur Sportbúðarinnar eru löngu orðnar frægar því þær eru alvöru.  Svo er einnig um þessa því allt á að seljast til að auðvelda flutninginn. Ný og enn betri Sportbúð verður opnuð í nýju húsnæði í mars.  Sportbúðin verður áfram alhliða veiðiverslun með áherslu á ódýrari veiðibúnað.  Áhersla á sjóstangveiði og ekki síst strandveiði verður aukin til muna í nýrri Sportbúð. Sportbúðin mun njóta þess áfram að vera í leiðinni úr bænum en staðsetningin hefur ekki síst skapað Sportbúðinni vinsælda síðustu sumur.“

Myndin er af þeim hjónum Ólafi og Maríu á veiðislóð á bökkum Norðurár fyrir fáum árum. Mynd Heimir Óskarsson.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica