votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Breytingar á döfinni við Skógá

3.1.2012

 

Skógá

Mynd frá Skógá á meðan allt lék þar í lyndi. Myndin er úr safni Rafns Hafnfjörð.

Útlit er fyrir því að byrjað verði frá grunni með uppbyggingu Skógár sem laxveiðiá á þessu ári og Ásgeir Ásmundsson sem staðið hefur í eldlínunni síðustu tólf árin, hverfi á braut og komi þar hvergi nærri.

Óþarfi er að rifja upp með mörgum orðum hrun Skógár, en leiðin á botnin þar hófst með eldgosinu í Eyjafjallajökli vorið 2010. Öskufall á afréttum og í byggð fyllti ána og höfðu leigutakinn og hjálparkokkar hans ekki undan að moka ösku úr ánni. Ekki bætti úr skák að sveitarfélagið mokaði ösku, sem hreinsað var frá sveitabæjum, í ána, en fyrir það var þó tekið fyrir rest.

Grafan í Skógá

Sorgleg mynd frá afdrifum Skógár, grafa að moka ösku úr ánni. Mynd Ásgeir Ásmundsson.

Sumarið 2010 fór því fyrir lítið, en menn vonuðu það besta, að seiðin sem sleppt var þá um vorið myndu skila sér á nýliðnu ári. Það gekk hins vegar ekki eftir. Menn hafa endalaust velt vöngum yfir því hver afdrif seiðanna urðu. Áhrif af eldgosunum? Eitthvað annað?  Hvað sem því líður, þá var Skógá ekki eina laxveiðiáin á Suðurlandi, með seiðatjarnir, sem  fékk slakar heimtur á liðnu sumri. En Skógá kom sýnu verst út, fyrir utan kannski Vatnsá og það var dropinn sem fyllti mælinn. Leigutakinn til 12 ára, er að hverfa á braut.

En Ásgeir staðfesti í samtali við VoV, að samningaviðræður stæðu yfir við nýjan aðila og kæmi hann sjálfur að þeirri vinnu. Hann sagði ótímabært að varpa nánara ljósi á málið, en ef það gengi eftir að semja við umræddan aðila myndi seiðum aftur verða sleppt í Skógá á komandi vori. Áin hefur stöðugt verið að hreinsast með hverjum mánuðinum og verður því fróðlegt að sjá hvort að nýr mannskapur nær að koma ánni aftur í tölu gjöfulla laxveiðiáa.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica