votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Horfir vel með vatnsbúskapinn

2.1.2012

 

Kvíslafoss vatnslaus 2009

Dæmigerð hásumarsmynd frá Laxá í Kjós síðustu sumur, eða þar til í fyrra að það komu betri dagar og kannski verður allt enn betra næsta sumar....

Nú í ársbyrjun eru menn farnir að spá fyrir alvöru í því hvort að sumarið 2012 verði enn eitt þurrkasumarið með árnar stiklandi oní grjóti stóran hluta veiðitímans og laxatorfurnar sampakkaðar ofaní dýpstu pyttum. Það eru þó góð teikn á lofti.

Góð teikn? Jah, það er ekkert hægt að ráða í veðurspár fyrir sumarið í byrjun janúar. Menn líta í þeim efnum aðallega á spána fyrir næsta dag á óvenjulega snjóþungum vetri á Suðvesturlandi. Og víðar hefur snjóað grimmt. Síðasta vetur var þetta svona í þessa sömu átt, mönnum þótti snjóa mikið miðað við fyrri vetur og framan af sumri nutu veiðimenn góðs af því. En svo rigndi ekkert fremur en venjulega og árnar skriðu niður í grjót. Nú virðist hafa snjóað meira, og það sem meira er, á réttum tíma fyrir vatnsbúskapinn samkvæmt einum mesta sérfræðingi landsins í laxveiði- og vatnsbúskapsmálu á veiðitíma.

Um er að ræða Eyþór „kokk“ Sigmundsson, en við höfum áður rifjað upp speki hans á síðum VoV. Meðal annars þessa sígildu: „Snjórinn sem fellur í fjöllin fyrir febrúar er sá snjór sem mestu máli skiptir. Hláni ekki á meðan hann hleðst upp, þjappast hann vel saman og bráðnar hægt,“ sagði Eyþór og hann veit hvað hann syngur. En það sem þá þarf að gerast er að þessi kulda- og snjótíð haldist að minnsta kosti út þennan fyrsta mánuð nýs árs. Gangi það eftir þá eru menn í betri málum en ella þegar vatnsbúskapur laxveiðiánna er annars vegar.

En þrátt fyrir allt þá var ástandið betra í fyrra en sumrin á undan. Sérstaklega á það við framan af sumri. En þá kom upp óvæntur vinkill. Þannig var nefnilega, að í gegnum þurrkasumrin var þessi ógurlega traffík af nýju veiðifólki í ánum, gestir fjármála- og stórfyrirtækja.  Þá komu einnig til skjalanna yngri leiðsögumenn sem lærðu á árnar í litlu vatni, en svo þegar mikið og gott vatn var framan af sumri þá gekk mörgum verr en efni stóðu til því menn höfðu ekki reynslu af ánum í „eðlilegum“ gír! All nokkur dæmi um þeta heyrðum við á síðasta sumri. Menn eru þó reynslunni ríkari ef að ástandið verður svipað eða betra á komandi vertíð.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica