votnogveidi_Fors_2009-04
almennt

Sjötta tölublað Veiðislóðar komið út

20.12.2011

 

 

Sjötta tölublað okkar félaga af Veiðislóð er nú komið út og er sækjanlegt hér á www.votnogveidi.is og á eigin vef, www.veidislod.is   Blaðið er með margbreytilegu efni sem viðkemur sportveiði á ýmsa vegu. Við lokum árinu með þessu tölublaði og þökkum fyrir viðtökurnar, sem hafa verið magnaðar.

Þess má geta að öll tölublöðin okkar eru nú klár fyrir iPad, það er beta útgáfa en þá er farið inn á okkar svæði http://issuu.com/votn-og-veidi og tölblað valið til aflestrar, iPadinn skynjar það svo þegar tölublað hefur verið valið.

VEIDISLOD_06_2011Efni jólablaðs Veiðislóðar er margvíslegt, við segjum frá veiðistaðnum Mýrarkvísl, segjum frá Pro Tube túpuhnýtingarkerfinu,  skreppum á bogveiðar með Dúa Landmark til Kólórado, segjum frá Poniter veiðihundum Ásgeirs heiðars og vitleysunni sem er í gangi í aðdraganda Þjórsárvirkjana svo eitthva‘ð sé nefnt. Ljósmyndagalleríið okkar er og magnað sem fyrri daginn, ekki hvað síst vegna þess að það er frá ótrúlegum sjóbleikjulendum á vesturströnd Grænlands.  Þá er vert að geta samantektar okkar um frumskóg veiðibóka þessi jólin og viðtal við einn snjallasta vínsmakkara landsins, Hafliða Loftsson sem leiðir okkur að besta víninu með rammíslenskri villibráð yfir hátíðirnar. Græjusíðurnar eru síðan á sínum stað og margt annað fastaefni.

Þegar af stað var farið var ætlunin að gefa út sex blöð og sjá til. Blöðin eru nú orðin sex og mestar líkur á því að við höldum þessari útgáfu áfram á einn veg eða annan. Viðtökur lesenda hafa farið langt fram úr vonum. Lesendur geta gert eitt og annað til að styðja við bakið á okkur, m.a. með því að skrá sig fyrir áskrift á heimasíðu Veiðislóðar, www.veidislod.is .  Enn fremur er öllum lesendum frjálst að senda okkur hugleiðingar um efni, að ekki sé minnst á sanngjarna og uppbyggilega gagnrýni. Slíkan póst má senda okkur á ritstjorn@votnogveidi.is




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica