votnogveidi_Fors_2009-05
almennt

Fréttir af leigu- og útboðsmálum

19.12.2011

 

 

Dálítið hefur orist af athyglisverðum fréttamolum af útboðs- og leigumálum. Þannig var t.d. nýlega lýst eftir tilboðum í Skjálfandafljót og það fréttist auk þess um helgina að Orri Vigfússon hefði framlengt samningi um Fljótaá til næstu ára.

Fallegt við FljótaáÚtboð Skjálfandafljóts þykja tíðindi, en sumir segja að fljótið sé með best geymdu leyndarmálunum í laxveiðiheiminum íslenska. Að sönnu er fljótið oft gruggugt, en þó ekki alltaf og fer eftir veðurfari. Sjaldan mun það óveiðandi. En hitt er víst, að það er fullt af laxi og hefur gefið mörg hundruð laxa á vertíð, auk þess sem sjóbleikjuveiði hefur þótt vera góð á vissum svæðum árinnar.

Það er fallegt við Fljótaá.

Auglýsing er frá A-deild veiðifélags Skjálfandafljóts um útboð á veiðirétti árin 2012 til 2015 að báðum árum meðtöldum en annars hljómar auglýsingin svona: Útboð á veiðirétti  - A-deild Veiðifélags Skjálfandafljóts óskar eftir tilboðum í lax- og silungsveiði á starfssvæði félagsins árin 2012 til 2015, að báðum árum meðtöldum. Um er að ræða 6 laxveiðstangir og 10 silungsveiðistangir. Umsjónarmaður útboðsins er Gunnar Sólnes hrl., Hafnarstræti 91 – 95, 600 Akureyri. Útboðsgögn fást hjá honum gegn greiðslu kr. 25.000.  Tilboðum skal skila fyrir 16. janúar 2012, kl. 12.00, þá verða tilboðin opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Þá hefur veiðifélag Fljótaár í Fljótum framlengt samning sinn við Orra Vigfússon, sem hefur haft ána á leigu síðustu sumur í náinni samvinnu við Stangaveiðifélag Siglufjarðar. Áin hefur skilað góðri veiði síðustu sumur, bæði laxi og sjóbleikju.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica