Tuttugu og fimm gönguleiðir
Þið getið sagt það ef þið viljið, en sú bók sem við kynnum hér er kanski ekki veiðibók, en hún á samt fullt og mikið erindi til veiðimanna, sérstaklega þeirra sem lifa og hrærast á Suðvesturhorninu.

Bókin heitir: 25 gönguleiðir á Hvalfjarðarsvæðinu og er eftir Reyni Ingibjartsson. Þetta er fallega myndskreytt bók með kortum og skilmerkilegum frásögnum frá margreyndum útivistarmanni sem þekkir svæðið eins og handarbökin á sér. 25 gönguleiðir á svæði sem er svo nálægt höfuðborgarsvæðinu og fleiri þéttbýliskjörnum að um er að ræða auðsótt útivistarsvæði. Náttúrufegurð og fjölbreytileiki er gríðarlegur á svæðinu. Nú er enginn veiðitími og menn þurfa samt að fá sína útrás. Síðan vorar og útivist og nálægð við náttúruna er mikilvæg. Þetta þarf ekki að segja flestum veiðimönnum. Við höfum rýnt í þessa bók og hún er frábær. Enn einn valkosturinn í jólabókaflóru veiði- og útivistarfólks. Útgefandi er Salka.
