votnogveidi_Fors_2009-04
almennt

Misvísandi skilaboð frá LV um útboð og hækkanir

8.12.2011

 

0015

Eitt og annað bendir nú til að verð laxveiðileyfa fari hækkandi. Mynd Einar Falur.

Óhætt er að segja að misvísandi túlkanir á útboðum í laxveiðiár hafi borist úr röðum LV, Landsambands veiðifélaga, síðustu daga.  Í nýjasta fréttabréfi LV , sem er aðeins sent í pósti til landeigenda, er t.d. að finna mjög einhæfa túlkun á útboðum sem ekki hafa farið fram. Að þær sem afstaðnar eru bendi til að hinar leiði til hækkana.

Kíkjum aðeins á hvað stendur í fréttabréfinu og er væntanlega frá Óðni Sigþórssyni formanni LV, en hann er skráður ábyrgðamaður bréfsins:

Nokkuð hefur verið um útboð á veiðiám nú í haust. Búið er að opna tilboð í Laxá á Ásum, Þverá og Kjarará og Flókadalsá efri, í Fljótum. Allsstaðar er um verulega hækkun að ræða miðað við eldri samninga, eða frá 20% upp í rúm 50%. Eftir þessu að dæma virðast sumir veiðileyfasalar meta það svo að markaðurinn þoli þó nokkra hækkun.
Ýmsar ár eru með lausa samninga haustið 2013, og því að velta því fyrir sér þessar vikurnar, hvort rétt sé að fara í útboð eða leita samninga við leigutaka án þess. Má þar til nefna Laxá í Kjós, Grímsá og Tunguá, Haukadalsá, Gljúfurá í Borgarfirði og eflaust fleiri.
En hvort heldur sem veiðifélögin kjósa beina samninga eða útboð - þá er það ljóst að niðurstaða þeirra útboða sem nefnd eru hér að ofan munu hafa áhrif til hækkunar á þeim samningum, sem gerðir verða á næstunni.“

Misvísandi? Jú, í Fréttablaðinu snemma í þessum mánuði var andsvarsgrein frá Óðni til hagfræðings sem stakk upp á því að vaski yrði skellt á veiðileyfi og þar sagði Óðinn  m.a.:

Mörg veiðifélög vinna nú að endurnýjun samninga  við leigutaka og er allur gangur á hvort tilefni er til breytinga á veiðileigunni.  Allt fer þetta eftir veiðinni sem söluhorfur byggja á að mestu.  Þannig er það fjarri lagi að mikil hækkun á einni veiðiá í útboði leiði til tilsvarandi hækkunar yfir allann markaðinn.  Ný dæmi eru t.d. um að veittur hafi verið afsláttur af gildandi samningum í kjölfar þess að veiðisumarið hefur ekki staðist væntingar í einstökum ám.  Þá verður einnig að hafa í huga að tekjur af laxveiðihlunnindum til lengri tíma eru mjög háðar þróun gengis íslensku krónunnar, enda stór hluti viðskiptamanna nú erlendir veiðimenn.“ 

Að ofanskráðu lesnu er ekki gott að átta sig á því hvaða viðhorf  sé ríkjandi hjá forystu LV, en við gefum okkur þó að það sé það nýrra, sem er tilvitnunin í fréttabréfið þar sem hækkanir eru boðaðar í framhaldi af nýgengnum útboðum. Og í Fréttablaðinu í dag(fimtudag), liggur við að þriðja viðhorfið komi frá formanni LV, er hann segir í samtali við fréttamann að,

„Það virðist ákveðin tilhneiging núna á þessum markaði að ná til baka þeirri miklu lækkun sem varð á veiðileyfum í hruninu.“

Fréttin fjallaði annars um þessi sömu mál, að útboð framtíðarinnar  hljóti að leiða til hækkanna vegna hækkunar útboða að undanförnu.

Eins og nærri má geta þá eru stangaveiðimenn hér á landi ekki par hrifnir af þeim hækkunum á árleigum sem komu fram í útboðum á Laxá á Ásum og Þverá/Kjarrá. T.d. sagði Bjarni Júlíusson formaður SVFR eftirfarandi í sömu frétt Fréttablaðsins: „Þegar upp er staðið snýst þetta um það hvort það séu til kaupendur að veiðileyfum sem hafa hækkað um tuttugu eða þrjátíu prósent. Ég fullyrði að hinn almenni íslenski veiðimaður þolir ekki svona hækkun.“  Síðan er það reifað í fréttinni að hækkunum sé beint á erlendan markað og þá bætir Bjarni við: „Gengið hefur verið hagstætt til þessa en það er kreppa úti í heimi og viðsjár á evrusvæðinu,“ og bætir síðan við að erfitt get verið að viðhalda hækkuðu verði ef að evran falli gagnvart krónunni.

VoV hefur hlýtt á tal veiðimanna og skoðað samskiptaþræði. Þar eru skoðanir veiðimanna á borð við þessar:  Þetta er með hreinustu ólíkindum. Línurnar lagðar og niðurstaða útboða ákveðin fyrirfram. Hvernig voga menn sér að senda svona frá sér?”    “Fáranleg afstaða að halda að útboð þýði sjálfkrafa hækkun...”   og: „Þarna eru skilaboðin einfaldlega send til félagsmanna. Kallast þetta ekki verðsamráð?”  

Og fleira mætti tína til, nánast allt á sömu línum.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica