Ný laxveiðibók þykir taka öðrum fram
Á sama tíma og hver veiðibókin af annarri kemur út hér á landi, þá er ný veiðibók að slá í gegn beggja vegna Atlantsála. Sú heitir Atlantic Salmon Magic og nokkurs konar „hliðarrit“ hennar: 100 Best flies for Atlantic Salmon.
Bókin er eftir Topher Brown og hefur verið lýst af Andrew Flitcroft, ritstjóra Trout and Salmon, sem besta „nutíma“ (modern) laxveiðibókin og skyldueign innvígðra laxveiðimanna. Hún sé klassík. Um er að ræða 463 blaðsíðna rit þar sem Brown tekur fyrir öll helstu hugðarefni laxveiðimanna, t.d. hvað sér laxinn, hvers vegna getur hann ekki séð fluguna í friði. Hann ber fram eigin kenningar og annarra og gengur stundum í berhögg við ríkjandi kenningar með áleitnum uppástungum og hugmyndum.

Gamlir meistarar á borð við Falkus og Wood fá t.d. ekki að hvíla í friði með klassískar teoríur sínar. Bókin er ríkulega myndskreytt og DVD diskur fylgir hverri bók og ber diskurinn heitið Home of the Salmon, eða Heimahagar laxins. Það er nún kannski heldur mikil einföldun því efni disksins eru laxveiðiár Kólaskaga þar sem veiðimenn eru í hörðum orrustum við afar stóra laxa.
Nokkurs konar hliðarrit eða fylgirit bókarinnar er bókin 100 Best Salmon Flies og fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um 100 laxaflugur sem þykja bera af öðrum og eru þær flokkaðar m.t.t. kaflaskiptinga aðalritsins. Allt eru þetta flugur sem reynast vel alls staðar þar sem menn egna fyrir Atlantshafslaxinn.
Bók þessi er fáanleg á netinu, það mætti reyna að hafa samband við þennan hlekk, www.fishandfly.com en þess má geta að hluti af ágóða sérstakrar viðhafnarútgáfu rennur til laxverndarmála.
