Bara vatn og fiskur

Enn ein veiðibókin hefur litið dagsins ljós í þessu jólabókaflóði, sem stendur nú heldur betur undir nafni hvað veiðimenn varðar. Það er Pálmi Einarsson hjá Designhouseone sem hefur sent frá sér bókina Bara vatn og fiskur.
Lesendur VoV og Veiðislóðar eiga orðið að þekkja vel til Pálma sem all nokkrum sinnum hefur leyft okkur að birta stórfallegar ljósmyndir sínar af bökkum vatnanna. Hér kveður við líkan tón og viðfangsefnin eru nokkrar af sömu ám og við höfum fengið að njóta, t.d. Stóra Laxá, Hafralónsá, Svalbarðsá og Laxá í Kjós. Í fréttatilkynningu sem Pálmi sendi okkur segir eftirfarandi: Hinn reyndi laxveiði- og veiðileiðsögumaður Pálmi Einarsson sem rekur sitt eigið hönnunarfyrirtæki designhouseone, er að gefa út sína fyrstu bók fyrir þessi jól. Bókin heitir Bara vatn og fiskur og telur 64 síður, fallega innbundin og saumuð og sómir sér því vel á stofuborði, í veiðihúsum og frammi í fyrirtækjum.
Í bókinni eru einstakar ljósmyndir af sex íslenskum laxveiðiám, ásamt áhugaverðum og nytsamlegum ráðum með skýringarmyndum. Myndirnar tók Pálmi í veiðiferðum sínum sl. tvö sumur og byggjast ráðin á áralangri reynslu hans af laxveiði. Allar skýringarmyndirnar teiknaði hann sjálfur og sá einnig um uppsetningu og umbrot. Bókin mun m.a. fást í öllum helstu veiðibúðum landsins. Nánari upplýsingar um sölustaði má finna á heimasíðunni . Þar er einnig hægt að skoða nokkrar opnur úr bókinni sem verður gefin út á ensku, þýsku og frönsku í vor.“
Orri Vigfússon ritar fororð í bókina og hann segir: „Í rennandi, hvítfyssandi árvatni býr ógnarkraftur sem Pálmi Einarsson nær að fanga með ljósmyndum sínum. Pálmi hefur gefið út bók með ljósmyndum frá Hafralónsá og Svalbarðsá í Þistilfirði, Laxá í Kjós, Hofsá í Vopnafirði, Breiðdalsá í Breiðdal og Stóru-Laxá í Hreppum.Þetta er fyrst og fremst ljósmyndabók með skýringarmyndum en Pálmi hefur áratuga reynslu af laxveiði og er reyndur leiðsögumaður. Hverri mynd fylgir stuttur og hnitmiðaður texti, oftar en ekki með góðum ábendingum fyrir veiðimenn um hvernig skuli lesa vatnið og haga aðkomunni á veiðistaðina til að geta sem best notið augabliksins. Bókin er í þeim anda sem veiðimenn kjósa að dvelja í meðan beðið er næsta veiðiárs. Íslenskar laxveiðiár eru hver annarri fallegri og þessi fallega bók Pálma er mjög góð fyrir lærða sem leika.“
