votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Jóla-opna húsið í kvöld

2.12.2011

 

Lax úr MiðfjarðaráHið vinsæla jóla-opna hús SVFR verður í kvöld í félagsheimilinu í Austurveri og verður margt á boðstólum þar eins og jafnan. Ekki hvað síst árleg jólahugvekja séra Pálma Matthíassonar.

Fyrir utan inngangsorð séra Pálma má helst nefna að kynntur verður fjöldi jólabóka sem ætlaðar eru í jólapakka stangaveiðimanna, en þær eru óvenjumargar þetta árið. Þá ávarpar nýendurkjörinn formaður SVFR Bjarni Júlíusson viðstadda og heyrst hefur að jafn framt verði nýjasta áin í flóru SVFR, Dunká á Skógarströnd, kynnt. Ætti það að vera forvitnilegt því fáir þekkja haus eða sporð á þeirri nettu, en gjöfulu sprænu.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica