votnogveidi_Fors_2009-05
almennt

Hert á reglum hjá Strengjum

1.12.2011

 

Þröstur Elliðason með glæsilegan 17 punda lax úr BreiðdalnumVeiðifyrirkomulagið verður breytt í Breiðdalsá á komandi sumri þar sem leigutaka þótti nóg um hversu mörgum stórlöxum, og nær öllum smálöxum, var fargað úr ánni þrátt fyrir að tilmæli væru um að sleppa stórlaxi. Hert er á reglum enn fremur í Jöklu og Hrútafjarðará.

Þröstur Elliðason með stórlax úr Breiðdalsá

Þetta eru svæði sem eru á framfæri Strengja og segir Þröstur Elliðason eigandi Strengja að 50 prósent sleppihlutfall hafi verið í ánni sem honum þyki ekki mikið í ljósi þess að meira en helmingur laxa úr ánni voru stórlaxar. Segir hann að undantekningarlaust hafi smálax allur verið drepinn að auki, jafnvel hjá mönnum sem voru svo heppnir að lenda í moki. „Ég hef aldrei verið talsmaður þess að eingöngu veiða og sleppa, eða hafa kvóta á laxi, en nú verður ekki undan komist að herða reglur fyrir 2012 í þessum ám.  Sleppiskylda verður á öllum 70cm laxi og stærri og kvóti tveir laxar á stöng á dag sem má hirða af smálaxi. Og í Steinboganum í Jöklu og ofar í Jökuldal verður sleppiskylda á öllum laxi enda vannýtt uppeldiskilyrði þar fyrir náttúruleg laxaseiði og vantar meiri hrygningu þar. Maðkur verður bannaður í Breiðdalsá en áfram leyfilegur í september á Jöklusvæðinu. Spónveiði verður áfram leyfð í september í báðum ám enda ekki vandamál að sleppa spónveiddum laxi aftur í flestum tilfellum. Í Hrútafjarðará verður enginn kvóti, en sleppiskylda á stórlaxi, en áður hafði verið mælst til að sleppa honum. Með þessum ráðstöfunum náum við að vernda stórlaxinn ásamt því að veiðimenn fái samt laxa í „soðið“, t.d. eftir þriggja daga holl ættu flestir að vera sáttir að geta tekið með sér heim allt að sex smálaxa á stöngina tel ég,“ sagði Þröstur.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica