almennt
Laxarnir á myndinni eru.....

Við birtum á dögunum létta getraun, spurðum lesendur hvaðp þeir teldu marga laxa á mynd sem tekin var í undirdjúpum Norðurár. Myndin var snúin, enda fengum við margar tillögur. En rétt svar er...
....sex laxar! Við fengum fjölmarga pósta og mjög margir voru með töluna rétta. En við fengum tillögur frá 4 löxum og upp í 8 stykki. Kannski ekki alveg jafn harkalega bjartsýnt og hjá ónefndum veiðileyfasala sem taldi alltaf skuggann af laxinum og skuggann af skugganum. Fékk út níu ef laxarnir voru þrír! En mikil bjartsýni samt að finna þarna átta laxa.

En eins og svo oft áður þá segja myndir meira en mörg orð. Hér er myndin og skýringarmyndin sem tekur af allan vafa
