almennt
Hvað eru laxarnir margir?

Myndina sem hér fylgir tók Heimir Óskarsson í undirdjúpum Norðurár fyrir skemmstu. Skemmtileg mynd og full af dulúð. Gaman að sjá hvað Canon Powershot D10 vélarnar eru magnaðar. En við vörpum fram þeirri spurningu: Hvað sjá lesendur okkar marga laxa á myndinni?
Þetta er glúrin spurning og vonum við að við fáum einhver viðbrögð frá ykkur. Við erum búnir að reikna það út án nokkurra skekkjumarka. Þetta er svona til gamans gert, engin verðlaun fyrir rétt svar eða svoleiðis. En það verður fróðlegt að sjá hvort að lesendur finna rétt svar út úr þessu. Við ætlum að leyfa ykkur að velta þessu fyrir ykkur fram á helgi og á sunnudag birtum við svarið með skýringarmynd.
Hér er myndin stærri ...

