votnogveidi_Fors_2009-05
almennt

Veiðar á verndarsvæði

22.8.2010

 

Sjóbleikja úr Hörðudalsá

Sjóbleikja. Mynd Jón Eyfjörð.

Svo virðist sem að frétt sem við birtum á dögunum um að Norðurá í Skagafirði væri pökkuð af sjóbleikju hafi byggt á röngum forsendum.

Ekki svo að skilja að áin sé ekki pökkuð af bleikju, en okkur hefur borist það til eyrna að þeir veiðimenn sem greint var frá og sendu okkur myndir af veiðunum hafi verið inni á verndarsvæði sem er lokað stangaveiði.  Því miður er mögulegt að frétt okkar hafi leitt til þess að fleiri hafa farið inn á þetta verndarsvæði. Við viljum því fyrir okkar leyti vekja athygli á þessu. Við fengum skeyti í gær frá Kára Gunnarssyni í Varmahlíð og hann sagði eftirfarandi:

„Mig langar að benda ykkur á að við frétt um Norðurá í Skagafirði (14.ágúst s.l.) er mynd tekin á svæði sem hefur verið friðað fyrir veiði í sumar og eru því veiðiþjófar á ferð á myndinni með umfjölluninni. Haft var samband við viðkomandi og viðurkenndi hann að hafa keyrt fram hjá skilti sem bendir mönnum á að þeir séu á fiskverndarsvæði. Veiðiþjófnaður hefur verið mikið vandamál þarna í sumar, veiðimenn síðast staðir að veiðiþjófnaði þarna í morgun, (laugardag). Mér finnst allt í lagi að þið fjallið um þetta vandamál á vefnum, eftir frétt ykkar um Norðurá pakkaða af bleikju, hafa veiðiþjófar verið á þessu svæði flesta daga og koma óorði á þann mikla meirihluta veiðimanna sem eru til fyrirmyndar.“




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica