votnogveidi_Fors_2009-04
almennt

Steinsmýrarvötn í útboð

17.8.2010

 

Veiðimenn með afla í Steinsmýrarvötnum

Frá Steinsmýrarvötnum, veiðimenn vaða einn álinn með afla. Mynd gg.

Athyglisvert veiðisvæði er nú komið í útboð, en það eru Steinsmýrarvötn, þ.e.a.s. sá hluti þeirra sem heyra undir Syðri Steinsmýri. Þarna er um krefjandi veiðisvæði að ræða sem er gjöfult á sjóbirting, staðbundinn urriða og bleikju.

Skúli Baldursson á Syðri Steinsmýri sagði okkur að Steinsmýrarvötnin væru að fara í útboð þar sem ekki hefur náðst samkomulag milli hans og SVFR  um áframhaldandi samstarf, en SVFR hefur selt í vötnin síðustu vertíðir. Vetíðin er löng í Steinsmýrarvötnum, eða frá 1.apríl og langleiðina út október. Vötnin eru nú komin í 665 fiska að sögn Skúla og aðeins byrjað að örla á sjóbirtingi.

 




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica