votnogveidi_Fors_2009-02
almennt

Flekkan á leið í Svissneskar hendur

15.8.2010

  Maríulax þreyttur í Flekku

Frá Flekku í vatnsleysi. Mynd Hjálmar Árnason

Flekkudalsá var nýlega auglýst í útboði og flest bendir til að Svisslendingurinn Doppler hreppi ána. Hann hefur verið með ár á leigu hérlendis um árabil og hefur nýlega horfið af Sléttunni með Ormarsá og Deildará. Hann er þó eftir sem áður leigutaki Hauku. Talað er um 3 ára samning um Flekkuna.

Samkvæmt okkar bestu heimildum þá var Doppler með hæsta tilboðið og frávikstilboð sem var mun hærra og gerði ráð fyrir maðkveiði.  Það vildu bændur ekki, en hafa verið í viðræðum við Doppler um það tilboð hans er gerði ráð fyrir aðeins fluguveiði. Við höfum ekki haldbærar tölur í bili, en eftir því sem við best fréttum þá er þetta tilboð sem miðar að því að áin verður nýtt af leigutaka, vinum og vandamönnum eins og þekkt er að verða hér á landi eftir hrun. Þannig er einmitt farið um Ormarsá sem Doppler var með á leigu, hópur einstaklinga sem ætla að nýta leyfin sjálfir hefur leigt ána til tíu ára.

All nokkrir innlendir aðilar buðu í ána og voru nálægt Doppler, en ekki alveg, það vantaði herslumun og því fer sem fer væntanlega. Doppler er með Haukadalsá og han var með Ormarsá og Deildará á Sléttu. Þær eru nú komnar í annarrra hendur. Verði þetta niðurstaðan, eins og flest bendir til, þá verður innlenndum kúnnahópum úthýst úr ánni.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica