Sveitarfélagið mokaði ösku í ána!
Það er engu til sparað að koma Skógá í gang. Mynd Ásgeir Ásmundsson.
Lax safnast nú í stórar torfur í ósi Skógár, en enn sem komið er hefur hann ekki látið vaða upp í á. Ásgeir Ásmundsson leigutaki hefur unnið þrotlaust að því að opna ána, en hefur glímt við margvísleg vandamál, meðal þeirra er sveitarfélagið sjálft!
Við greindum frá því fyrir skemmstu að Ásgeir hefði tekið sig til og grafið út neðsta hluta árinnar, leigt til þess gröfu og er nú áin klárlega laxgeng. Ástandið var slæmt, áin flæmdist örgrunn um breiður og sanda og askan úr eldgosinu fyllti allt. Ekki var það til að bæta ástandið þegar Ásgeir varð þess áskynja að sveitarfélagið sjálft var að nota ána sem ruslakistu.
Ásgeir með lax úr Kerlingardalsá í fyrra.
“Jú, ég hef verið í þessu brasi við sveitarfélagið í mörg ár, það hefur verið tilhneiging til að nota ána til losunar þó að verið sé að rækta hana upp sem stangaveiðiá. Áður hefur þetta verið haft þannig að þeir hafa sagst vera að verja bakka og keyrt úrgang og skellt ofan á gras frammi á bökkum. Ég hef aldrei botnað í þessu og geri jafnan athugasemdir, ég veit ekki betur en að ef þú kæfir gróður þá drepst hann og þá bindur þú ekki eitt eða neitt með honum. Svo bar við að þegar öskuhreinsunin var komin á fulla ferð, þá var askan keyrð í ána. Ég talaði við yfirmann áhaldahússins á Hvolsvelli og krafði hann skýringa á þessu og mótmælti því að sjálfsögðu. Veiðimálastjóri var þá nýbúinn að birta ákall til hreinsunaraðila í Bændablaðinu um að keyra ekki öskuna í árnar á svæðinu. Þessi náungi hafði ekkert heyrt af því og taldi eðlilegast að áin sæi um að koma öskunni til hafs,” sagði Ásgeir.
Einn af all nokkrum hyljum sem Ásgeir hefur endurbyggt eftir hamfarirnar.
Mótmæli hans hrifu, hann ræddi við sveitarstjórann sem lýsti sig sammála því að aka ekki öskunni í ána og var því þá hætt. Þetta var stuttu fyrir veiðitímann. Hins vegar var tekið til við að aka öskunni í hrúgur á árbakkanum og í næsta nágrenni hennar þó svo að sveitarfélagið sé með urðunarstað sem er aðeins kilometers lengri akstursleið. Ásgeir mótmælti þessu líka og voru hraukarnir fjarlægðir, allir nema einn, sem er á blábakkanum neðan þjóðvegar og er augljóst að ánni er ætlað að sópa honum til hafs með tíð og tíma.
Við þetta má bæta að Ásgeir segist undrandi á því hversu fiskifræðingar sýni ástandinu lítinn áhuga. Þeir hafi komið einu sinni á meðan gosið stóð yfir, en síðan hefði margt gengið á og gerst og væri svæðið einstakt til lærdóms, því svona lagað gæti hvenær sem er gesrt aftur. "Ef ég væri sjálfur fiskifræðingur þá eru hér ótal spurningar sem ég myndi vilja fá svör við," sagði Ásgeir
“Þetta hefur því ekki verið skemmtilegt og veiðimenn sem hafa keypt hér veiðileyfi hafa eðlilega áhyggjur af því hvernig þetta fer allt saman. Maður verður að halda í bjartsýnina og hún segir manni að laxinn lætur fátt ef nokkuð stoppa sig. Það er gaman að fylgjast með honum í ósnum. Það eru torfur þar og fara mikinn. Maður verður að vona að hann finni fljótlega hjá sér hvöt að drífa sig upp í á,” sagði Ásgeir að lokum.
