Arnarvatnsheiðin lífleg að venju
Veiði hefur verið góð á Arnarvatnsheiði það sem af er sumri þó svo að veður hafi verið rysjótt á köflum. Þetta þýðir ekki að allir mokveiði, en við höfum heyrt fregnir af mörgum fínum skotum.
Umferð á Arnarvatnsheiði að sunnan hefur aukist til mikilla muna allra síðustu sumrin, enda hafa verið gerðar vegabætur og auk þess eru komnir all nokkrir skálar sem menn geta gist í. Þarna er þó enn þá yfirdrifið nóg pláss og mikið rými fyrir frjálsan anda. Við þekkjum all nokkra sem fara reglulega á Heiðina, í það minnsta einu sinni á sumri og sumir oftar. Það hafa verið all nokkrir fínir túrarnir.

Fallegur bleikjuafli af Heiðinni.
Eins og t.d. félagar þrír sem tjölduðu við Arnarvatn litla og veiddu í vatninu, Refsveinu, Arfavatni og Veiðitjörn. Röltu þetta fram og aftur, voru með flugu að öllu jöfnu, en maðk á letingjum þegar þeir slökuðu á við tjöldin. Þessir kappar fóru í bæinn með yfir 60 fiska sem flestir voru á bilinu 1-2 pund. Mest var þetta bleikja en einnig nokkrir urriðar. Stærsti fiskurinn var 5 punda urriði. Annar hópur, skipaður ónefndri tölu veiddi ríflega 100 stykki, mest á beitu í Arnarvatni litla og enn annar hópur sem við heyrðum af, hélt sig við Úlfsvatn og veiddi um 80 fiska. Þeir voru fjórir saman og margir fiskar í þeirra hrúgu 2-3 pund.
Þannig að það er eftir töluverðu að slægjast á Arnarvatnsheiði. En það getur verið sniðugt, ef menn eru ekki með skála pantaðan fram í tímann, að fylgjast með veðurspám, því hvassvirði gruggar fljótt upp flest vatnanna á Heiðinni. Þau eru grunn að upplagi og með lausum leirbotni.
