votnogveidi_Fors_2009-02
almennt

Koma hraustir úr hafi

18.7.2010

 

Þegar laxagöngur eru jafn sterkar og raun ber vitni, og mikið virðist vera af bæði stórum laxi og smáum, veit það yfirleitt á gott ástand til sjávar.

Hér eru góð dæmi um hvað er að skila sér upp í árnar.

Laxi sleppt

Laxinn hans Damon Roe.

Hér erum við enn með myndir úr smiðju Jóns Þórs Júlíussonar en hann tók þessar myndir báðar á bökkum Grímsár í Borgarfirði fyrir skemmstu. Á annari myndinni er hinn breski Damon Roe með ríflega 80 cm hrygnu úr Laxfossi í Grímsá. Laxinn er í sjálfu sér ekkert óvenjulega stór, þetta er bara eðlilegur tveggja ára lax. EN það sem er magnað er vaxtarlagið. Lítið á þetta!

Sjóbirtingur

Sjóbirtingurinn þéttvaxni.

Og ekki er sjóbirtingurinn á neðri myndinni síðri vintisburður um að laxfiskar landsins eru búnir að vera í veislu í hafinu. Stórlaxarnir eru á einhverri úthafsslóð en sjóbirtingar á grunnsævi. En það er sama hvaðan þeir eru að koma, þeir eru sílspikaðir.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica