votnogveidi_Fors_2009-02
almennt

Snemma beygist krókurinn

17.7.2010

 

Allir vita að laxinn er hið mesta rándýr í hafinu, sveimar um uppsjávar og étur það sem hann ræður við og étur vel. Og eins og hjá öðrum rándýrum þá beygist snemma krókurinn.

Seiði á öngli

Hér hefur nemandinn farið offari, enda enginn kennarinn! Mynd Jón Þór Júlíusson

Jú, veiðieðlið er í genunum því ekki hafa laxaseiði foreldra yfir sér til að kenna þeim listina að veiða til að lifa líkt og fuglar og spendýr. En í tilvikum laxfiska veitti kannski ekki af einhverjum reynsluboltum til að yfirsjá að allt fari nú vel fram í kennslustofunni og nemendur fari ekki offari. Eitthvað svoleiðis gæti manni dottið til hugar þegar skoðuð er myndin sem Jón Þór Júlíusson sendi okkur og var tekin í Stóru Laxá fyrr í sumar. Það er ekki ofsögum sagt, að með fálmurum, þá er hin græna Black Eyed Prawn stærri heldur en seiðið sem hugðist éta hana! Stubburinn slepp með skrekkinn í þetta skipti og vonandi að hann læri af reynslunni. Það er þó ekkert gefið í þeim efnum.





Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica