votnogveidi_Fors_2009-05
almennt

Rýfur Laxá í Aðaldal 30 punda múrinn í sumar?

17.7.2010

Vel veiðist í Laxá í Aðaldal miðað við að veður hefur verið erfitt, norðan kalsi og rigning á köflum. Hiti aðeins í kring um 6 gráður. Gríðarlegur meðalþungi setur enn svip á aflabrögðin.

Haraldur Eiríksson var við leiðsögn í Nesi síðustu daga og sagði hann að í gær, föstudag, hefði veðrið snarbatnað og hiti stigið á stuttum tíma upp í 12 gráður þegar vestanátt náði að ráða ríkjum og halda hafgolunni niðri.

Stórlax í háfnum

Rosalegur lax úr Dýjaveitum í Laxá í fyrra, þessi náði þó ekki 30 pundum, var ríflega 24 pund.

Haraldur sagði að ótrúlegt sjónarspil væri að sjá stórlaxana og spáði hann að í sumar kæmi 120 cm fiskur á land úr ánni. “Þeir eru hérna klárlega, við erum búnir að sjá þá og reisa þá og jafnvel setja í þá. Það tók einn svona ferlegur hérna í Kirkjuhólmakvísl hjá breskum veiðimanni og það var bara rokið og rokið og stokkið og stokkið. Ekkert hægt að gera og svo fór fiskurinn niður austurkvíslina. Veiðimaðurinn var með 30 punda taum, en það var síðan línan sem tengdi við skotlínuna sem slitnaði. Þegar þessi tröll fara að leggjast á staði eins og Knútsstaðatún og fleiri, þá fara menn að ráða betur við þá, en á sumum stöðunum hérna þarf alveg ótrúlega heppni til að halda svona ferlegum löxum. Það er ekki skrýtið að svo margir stórlaxar veiðist sem raun ber vitni í Vitaðsgjafa svo dæmi sé nefnt. Tilfellið er einfaldlega að þar ráða menn við þá. Dæmi um stærðina sem er hérna, þá fór Presthylur að gefa um leið og það hlýnaði og þá tvo tíma sem ég var við ána um morguninn, veiddust þar þrír laxar sem voru 15, 19 og 22 pund.”

Svo mörg voru þau orð Haraldar og verður gaman að sjá hversu sannspár hann reynist með 120 cm laxinn. Kvarði VMSt gerir ekki ráð fyrir stærri laxi en 114 cm og erum við þá samkvæmt honum komin með 14,5 kg lax á bakkann, eða 29 punda. Ef að líkum lætur, eins og títt er í Laxá, að laxarnir í henni séu þyngri heldur en kvarðinn býður upp á, þá erum við komin í 30 punda flokkinn.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica