Af stórlöxum í Breiðdalsá
Stórlaxinn er mættur í Breiðdalinn eins og svo víða annars staðar. Breskur veiðimaður, Richard Arnold að nafni setti í og landaði 106 cm löngum laxi. Fiskurinn vóg 12,5 kg. Ummál þessa stórfisks var hálfur metri sem segir að þessi lax hefur verið í góðum holdum. Laxinn tók Black and Blue keilutúbu á Skammdalsbreiðu og var sleppt eftir ríflega 40 mín. viðureign. Þá veiddust tveir aðrir risar í Breiðdalnum í dag, þegar vatnið tók að sjatna, hrygna 95 cm og skömmu síðar veiddi sami veiðimaður 90 cm hæng. Báðir þessir laxar veiddust í Klapparhyl sem er neðsti veiðistaðurinn í Breiðdalsá.
Allar myndirnar hér að neðan eru frá strengir.is

Sá 106 cm kominn í háfinn hjá Tómasi leiðsögumanni

Richard Arnold með laxinn í fanginu, rétt fyrir sleppingu
Þröstur segir talsver af nýjum laxi vera að ganga í Breiðdalsána nú um þessar mundir og veiðimenn hefðu orðið varir við fleiri stórlaxa.

Stórum laxi landað á Eiðsbreiðu í Laxá í Jökulsárhlíð
Þá nefndi Þröstur að veiðin á Jöklusvæðinu væri að fara í gang. Þar væri búið að rigna mikið og lítið hefði verið reynt að veiða. Samt væru komnir 8 laxar á land sem væri ágætt miðað við hversu lítið svæðið hefði verið stundað.
