votnogveidi_Fors_2009-04
almennt

Færri urriðar en í fyrra

11.7.2010

 

Urriðaveiðinni á svæðum Laxárfélagsins í Laxá í Aðaldal lauk þann 19. júní síðastliðinn. Alls voru skráðir til bókar 243 urriðar, 5 bleikjur og 1 lax. Þetta er heldur lakari veiði en vorið 2009 en þá veiddust um 320 urriðar.

Urriði

Flestir urriðarnir voru á bilinu 40 - 50 cm  (mynd Jón Eyfjörð)

Vorið einkenndist af sveiflum, hitinn fór oft í 14 – 18 gráður yfir hádaginn en féll svo um leið og sól settist. Dæmi voru til þess að hiti færi niður fyrir frostmark á nóttunni og að veiðimenn þyrftu að þíða vöðluskó að morgni, áður en lagt var af stað!

Flugur í boxi

Straumflugur í boxi, dæmigerðar flugur fyrir Laxá  (mynd Jón Eyfjörð)

Eins og síðastliðið vor voru það straumflugur sem gáfu besta veiði, Rektor, Black ghost og Nobblerar af ýmsum litum, svartur og hvítur þó sterkastir. Þá veiddist einnig ágætlega á hefðbundnar votflugur og léttar púpur, s.s. Pheasant tail og Peter Ross.

Stærsti urriðinn þetta vorið reyndist vera 65 cm fiskur sem veiddist rétt neðan við Hagabakka nyrðri, nánast við flúðirnar sem þar eru fyrir neðan. Nokkuð var um urriða á bilinu 50 – 60 cm en uppistaðan í veiðinni var fiskur í 40 – 50 cm flokknum. 



Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica