Kennir margra grasa í nýju Sportveiðiblaði
Nýjasta tölublað af Sportveiðiblaðinu var að koma út fyrir skemmstu og kennir þar margra grasa eins og endranær. Þungt vega viðtöl við nokkra geysisterka veiðimenn sem hafa frá mörgu að segja.

Gunnar Bender ritstjóri Sportveiðiblaðsins er ánægður með afurðina og segist hafa stækkað blaðið fremur en að minnka það í tilefni af kreppunni. Það er því enginn kreppubragur af blaðinu, en eftir að hafa blaðað í því og fundið margt skemmtilegt að lesa, standa upp úr viðtöl við Ingólf Kolbeinsson í Vesturröst, Óskar Pál Sveinsson og síðast en ekki síst Jón Gunnar Benjamínsson sem er engum líkur því hann stundar fluguveiðina af elju og kappi þrátt fyrir að hafa lent í svo hörmulegu bílslysi fyrir þremur árum að hann er lamaður neðan mittis í kjölfarið og stundar sínar veiðar af fjórhjóli.
