votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Veiðidagur Fjölskyldunnar

26.6.2010

 

 Ellidavatn_5_mai_2005_10

Margir hlakka til Veiðidags Fjölskyldunnar. Mynd Heimir Óskarsson.

Smá hlé frá laxveiðifréttum….Veiðidagur Fjölskyldunnar er á sunnudaginn og vonandi hefur enginn gleymt því að stangaveiðin er fyrst og fremst fjölskyldusport. Margir hafa áttað sig á því í tengslum við þennan dag sem á sér nú áralanga sögu.

Ellidavatn_5_mai_2005_14

Það eru Landsamband stangaveiðifélaga og Veiðikortið sem standa að deginum að þessu sinni og í tilkynningu frá þeim segir eftirfarandi: Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 27. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Í ár fagnar Landssamband Stangaveiðifélaga 60 ára afmæli og hefur staðið fyrir Veiðidegi Fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum.  Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verður 31 vatn í boði á veiðideginum.

Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna:  Á Suðvesturhorni landsins verður frítt að veiða í Elliðavatni, Vífilstaðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi Þjóðgarðsins og  Úlfljótsvatni.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Eyrarvatni, Skorradalsvatni í landi Indriðastaða, Langavatni á Mýrum, Hítarvatni, Hraunsfjarðarvatni, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík. Á Norðurlandi verður frítt að veiða í Hópinu, Höfðavatni, Vestmannsvatni, Torfadalsvatni, Botnsvatni, Ljósavatni, Hraunhafnarvatni, Æðarvatni og Arnarvatni. Á Austurlandi verður frítt að veiða í Kringluvatni, Urriðavatni, Langavatni, Víkurflóði, Höfðabrekkutjörnum og Þveit.“




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica